<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-05T15:13:37Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/46681" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/46681</identifier><datestamp>2024-05-02T08:33:32Z</datestamp><setSpec>com_1946_2061</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2069</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Sólveig Gylfadóttir 1991-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Helga Jónsdóttir 1957-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Brynja Ingadóttir 1961-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Berglind Guðrún Chu 1975-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Bakgrunnur: Rannsóknir benda til þess að hjúkrun sjúklinga í einangrun sé lakari en sjúklinga sem ekki eru í einangrun. Óánægja sjúklinga í einangrun á spítala stafar oft af skorti á upplýsingum og fræðslu. &#xd;
Markmið: Að meta árangur innleiðingar á fræðslumeðferð sem hjúkrunarfræðingar veita sjúklingum í viðbótarsmitgát hvað varðar þekkingu og viðhorf hjúkrunarfræðinga annars vegar og hins vegar að mæla hlutfall sjúklinga í viðbótarsmitgát sem fá fræðslumeðferðina. &#xd;
Aðferðafræði: Innleiðingarannsókn með hálftilraunasniði (e. quasi-experimental study). Rannsóknartímabilið var frá 1. október 2023 til 31. janúar 2024. Fræðslumeðferð fyrir sjúklinga í einangrun var hönnuð og innleidd með 1) fræðslufundi fyrir hjúkrunarfræðinga og 2) útgáfu skriflegs fræðsluefnis fyrir sjúklinga. Fræðslumeðferðin fólst í því að hjúkrunarfræðingur veitti sjúklingi í einangrun á innleiðingadeild formlega fræðslu. Árangur innleiðingar var metinn með því móti að a) þátttakendur sem voru starfandi hjúkrunarfræðingar á einni legudeild svöruðu spurningalistum þrisvar sinnum; fyrir innleiðingu (bakgrunnsupplýsingar, þekkingarspurningar, viðhorfsspurningar), í byrjun innleiðingar (hindrandi og hvetjandi þættir við innleiðingu) og í lok innleiðingar (allir spurningalistar auk spurninga um innleiðingu). Einnig var skráning um veitta fræðslu könnuð hjá sjúklingum sem voru í einangrun á rannsóknartímabilinu. b) Samanburður var gerður á fjölda sjúklinga sem fékk fræðslumeðferðina og heildarfjölda þeirra sem skráðir voru í viðbótareinangrun í innleiðingardeild. Gögn voru greind með lýsandi tölfræði. &#xd;
Niðurstöður: 21 hjúkrunarfræðingur sem var í virku starfi á innleiðingardeild fékk sent kynningarbréf. Fimm hjúkrunarfræðingar svöruðu öllum þremur spurningalistunum sem gerir 24% svarhlutfall. Vegna dræmrar þátttöku er ekki hægt að draga ályktanir af niðurstöðum um þekkingu og viðhorf hjúkrunarfræðinga fyrir og eftir innleiðingu. Alls voru 51 sjúklingur sem uppfyllti inntökuskilyrði. Hlutfall sjúklinga sem fékk fræðslumeðferð var 53%. &#xd;
Ályktanir: Rúmlega helmingur sjúklinga fengu fræðslu þrátt fyrir takmarkaða þátttöku hjúkrunarfræðinga. Telja rannsakendur þetta ágætis byrjun á innleiðingu fræðslumeðferðar en ýmsar ástæður gætu verið fyrir dræmri þátttöku svo sem vinnuálag og þreyta. Það er mikilvægt að rýna í ástæður fyrir framtíðarrannsóknir á þessu sviði.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="sponsorship" lang="is">Sótt um og fenginn styrkur fyrir rannsókninni í B-hluta Vísindasjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga í maí 2024.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2024-05-02T08:33:32Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2024-05-02T08:33:32Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2024-05-02T08:33:32Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2024-04-30T17:34:22Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2024-04</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/46681</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hjúkrunarfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Sjúklingar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Fræðsluefni</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Mat á árangri innleiðingar á fræðslumeðferð fyrir sjúklinga í einangrun vegna smitsjúkdóma</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="en">Evaluation of implementation of an educational intervention for patients isolated for infection control</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>