<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-04T21:39:29Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/46888" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/46888</identifier><datestamp>2024-05-07T15:18:33Z</datestamp><setSpec>com_1946_2059</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2065</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Elías Árni Eyþórsson 1995-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Marías Halldór Gestsson 1973-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Önundur Páll Ragnarsson 1982-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Markmið þessarar ritgerðar að reyna ákvarða hvort einstaklingar sem endurfjármagna úr óverðtryggðum í verðtryggð lán geri það vegna greiðsluerfiðleika. Með hærri stýrivöxtum Seðlabanka Íslands í kjölfar verðbólguskotsins eftir Covid-19 faraldurinn fór að draga úr fjölda óverðtryggðra fasteignalána en fjöldi verðtryggðra fasteignalána fór aftur að aukast. &#xd;
Einstaklingar sem tóku óverðtryggð fasteignalán fóru að skuldbreyta lánum sínum yfir í verðtryggð lán.  Mánaðarleg greiðslubyrði af verðtryggðum fasteignalánum er lægri en af óverðtryggðum á kostnað þess að verðbætur bætast við höfuðstól lánsins. &#xd;
Við greininguna eru notuð gögn unnin upp úr gagnagrunni Seðlabanka Íslands sem innihalda upplýsingar um fasteignalán til einstaklinga frá kerfislega mikilvægu bönkunum, Íbúðalánasjóði og níu stærstu lífeyrissjóðunum. Gögnin sem eru notuð í greiningunni einskorðast við óverðtryggð lán á breytilegum vöxtum sem voru tekin frá árinu 2020 til 2024 og voru endurfjármögnuð einhverntímann á sama tímabili. &#xd;
Metin eru líkön sem leiðrétta fyrir ómælanlegum einstaklingsáhrifum og einnig tímaáhrifum. Niðurstöður benda til þess að hærri greiðslubyrði  einstaklings auki líkur á að hann endurfjármagni úr óverðtryggðu fasteignaláni yfir í verðtryggt fasteignalán. Einnig eru vísbendingar um að lægri ráðstöfunartekjur auki líkur á endurfjármögnun á verðtryggðum vöxtum. Lægra veðsetningarhlutfall hefur einnig marktækt neikvæð áhrif á líkurnar á endurfjármögnun á verðtryggðum vöxtum en það má hugsanlega útskýra út frá því að á tímabilinu sem er til skoðunar hækkaði fasteignaverð töluvert. Að lokum eru vísbendingar um að hærra raunvaxtastig auki líkur á að endurfjármagna verðtryggt sem bendir til þess að einstaklingar séu ekki að endurfjármagna á verðtryggðum vöxtum til þess að hagnast á hagstæðum raunvaxtamun.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2024-05-07T15:18:32Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2024-05-07T15:18:32Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2024-05-07T15:18:33Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2024-05-07T12:10:40Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2024-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/46888</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Fjármálahagfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Verðtrygging og endurfjármögnun fasteignalána. Eru einstaklingar að endurfjármagna á verðtryggðum vöxtum vegna greiðsluerfiðleika?</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>