<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-29T14:15:22Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/46953" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/46953</identifier><datestamp>2024-05-10T14:04:31Z</datestamp><setSpec>com_1946_2059</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2066</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Arnfríður Árnadóttir 1984-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Þórhallur Örn Guðlaugsson 1962-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Miklar breytingar hafa átt sér stað undanfarna áratugi vegna tæknilegrar þróunar. Þjónusta í formi sjálfsafgreiðslu hefur rutt sér til rúms og eru matvöruverslanir þar ekkert undanskildar. Ákveðið var að rýna í þessar breytingar og kanna hvaða áskoranir og tækifæri þessi nýsköpun hefði í för með sér. Markmið rannsóknarinnar var að skoða þróun smásölu út frá tækninýjungum á matvörumarkaði, með sérstaka áherslu á sjálfsafgreiðslu. Skoðað var hvað hafi drifið þessa þróun áfram, hvaða áskoranir gætu fylgt tækninýjungum í þjónustuumhverfi og hver væri möguleg framtíðarsýn. Jafnframt var leitað svara við því hvaða þættir það væru sem hafi áhrif á val neytenda þegar kemur að sjálfsafgreiðslu, hver upplifun þeirra væri og hvernig þessar breytingar hefðu áhrif á kauphegðun neytenda. Rannsóknin var bæði megindleg og eigindleg þar sem notast var við spurningakönnun sem og viðtal við rekstraraðila. Notast var við þessar tvær aðferðir til að fá víðara sjónarhorn og dýpri skilning á viðfangsefninu. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós mismunandi upplifanir og viðhorf gagnvart lausninni. Spurt var út í fjóra þætti er varða kauphegðun neytenda, þá mikilvægi staðsetningar, verðs, gæða og sjálfsafgreiðslu. Í ljós kom að sjálfsafgreiðsla vó minnst af þessum þáttum, en staðsetning, verð og gæði vógu mest. Jafnframt fannst nánast enginn munur á viðhorfi neytenda til staðsetningar, gæða og lágs verð út frá þeim sem nýttu sér frekar sjálfsafgreiðslu og þeim sem gerðu það ekki. Þegar horft var til þess hvaða þættir drifu áfram þróun sjálfsafgreiðslu og mögulega framtíðarsýn voru niðurstöðurnar þægindi, rekstrarhagræðing, samfélagsleg áhrif og áframhaldandi tækniþróun. &#xd;
Niðurstöður rannsóknarinnar veita bæði dýpri skilning á áhrifum tækninýjunga á matvörumarkaðinum og hafa hagnýtt gildi, þar sem fyrirtæki geta nýtt sér þessar upplýsingar til að bæta rekstur og auka samkeppnishæfni í framtíðinni.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2024-05-10T10:17:08Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2024-05-10T10:17:08Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2024-05-10T10:17:08Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2024-05-09T13:46:29Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2024-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/46953</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Viðskiptafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Sjálfsafgreiðsla</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Matvöruverslanir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Tvíeggja sverð tækninýjunga. Þróun sjálfsafgreiðslu í matvöruverslunum.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>