<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-30T18:28:38Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/47102" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/47102</identifier><datestamp>2024-05-17T08:55:03Z</datestamp><setSpec>com_1946_2061</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2075</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Benedikt Burkni Þ. Hjarðar 1997-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Engilbert Sigurðsson 1964-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Valgerður Árný Rúnarsdóttir 1964-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Ágrip&#xd;
Inngangur: Algengasti aldur fyrstu meðferðar á Sjúkrahúsinu Vogi er 19 ár en á árunum 2000-2023 voru þar 14.693 innlagnir ungmenna á aldrinum 13-25 ára. Frá stofnun SÁÁ árið 1977 og með aukinni áfengis- og kannabisneyslu á níunda áratugnum hefur neyslumynstur ungs fólks á vímugjöfum þróast, meðal annars með neyslu vímugjafa í æð, vaxandi neyslu amfetamíns, kókaíns, metýlfenidats og nú síðast ópíóíða. Um aldamótin varð mikil aukning á vímugjafaneyslu ungs fólks og var þá byggð sérstök unglingadeild á Vogi. Kannanir Rannsókna &amp; greiningar sem hófust rétt fyrir aldamótin hafa varpað ljósi á þróun vímugjafaneyslu ungmenna og stutt við íslenska forvarnarmódelið á þessu tímaskeiði. Í dag sker Ísland sig úr með einna minnsta vímugjafaneyslu unglinga í Evrópu. Rannsóknin miðar að því að meta nýgengi innlagna 13-17 ára og 18-25 ára einstaklinga á Vog árin 2000-2023 og vísbendingar um skýribreytur eins og forvarnir, breytt viðhorf til innlagna unglinga og neyslumynstur þeirra á tímabilinu.&#xd;
Efniviður og aðferðir: Afturskyggn greining gerð á meðferðarinnlögnum á Vog á árunum 2000-2023. Fjöldi innlagna einstaklinga og fjöldi heildarinnlagna beggja kynja var leiðréttur í hverjum aldurshópi samkvæmt gögnum frá Hagstofunni. Einnig voru fengnar upplýsingar úr innlendum vímugjafakönnunum Rannsókna &amp; greiningar og Menntavísindastofnunar Háskóla Íslands.&#xd;
Niðurstöður: Innlögnum 13-25 ára ungmenna á Vog hefur farið stöðugt fækkandi frá aldamótum, úr 9,5/1000 árið 2003 hjá ólögráða hópnum í 4,5 árið 2017 og 20/1000 hjá þeim eldri árið 2000 í 7,5 árið 2023. Ungir karlar (18-25 ára) voru tvöfalt líklegri til að leggjast inn á tímabilinu en konur. Ungar stelpur (13-18 ára) voru þá hlutfallslega fleiri en þær eldri á tímabilinu. Neysla ungs fólks sem leggst inn hefur færst frá áfengi yfir í sterkari efni, nú síðast ópíóíða, en kannabisneysla innlagðra hefur breyst minna á tímabilinu.&#xd;
Ályktanir: Fækkun innlagna 13-25 ára ungmenna á Vog á tímabilinu á sér líklega ýmsar skýringar. Meðal þeirra eru tilkoma íslenska forvarnarmódelsins og þróun aðgengis og þjónustu ungs fólks á Vogi. Mikilvægt er að fylgjast vel með þróun notkunar nýrra efna og breyttu notkunarmynstri vímugjafa og nýta slíka þekkingu til reglulegrar aðlögunar á forvörnum hér á landi.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2024-05-17T08:55:03Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2024-05-17T08:55:03Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2024-05-17T08:55:03Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2024-05-16T21:59:13Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2024-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/47102</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Læknisfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Fíkniefnaneysla</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Meðferðarstofnanir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Þróun innlagna ungmenna á Vog og vímugjafaneyslu árin 2000-2023: Mögulegar skýringar og breytingar á tímabilinu</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>