<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-29T10:10:21Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/47404" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/47404</identifier><datestamp>2025-12-08T13:39:32Z</datestamp><setSpec>com_1946_6867</setSpec><setSpec>com_1946_6001</setSpec><setSpec>col_1946_6869</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn í Reykjavík</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Breki Þór Borgarsson 1998-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Stefán Orri Ólafsson 1983-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Innan Evrópusambandsins eru nú í farvatninu breytingar á reglum reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 596/2014 (MAR) um skyldu útgefanda fjármálagerninga til að birta innherjaupplýsingar. Markmið þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á umræddar breytingar, tilefni þeirra, inntak og áhrif á útgefendur og fjárfesta. Verðbréfamarkaðir Evrópusambandsins hafa undanfarinn áratug átt erfitt uppdráttar í samkeppni sinni við önnur stærri markaðssvæði og hafa verið sagðir vanþróaðir í þeim samanburði. Þar er einna helst sagt eiga sök regluverk sambandsins um verðbréfamarkaði, sem leggi of þungar byrðar á útgefendur með þeim afleiðingum að félög sækist síður eftir skráningu eða eftir atvikum kjósi að afskrá sig af markaði. Þar á meðal hefur verið bent á að skylda útgefanda til að birta innherjaupplýsingar samkvæmt MAR sé of víðtæk. Ákvæði reglugerðarinnar þar að lútandi hafi í för með sér réttaróvissu fyrir útgefendur um hvaða upplýsingar teljist til tilkynningarskyldra upplýsinga og stuðli að því að ótímabærar eða jafnvel villandi upplýsingar séu birtar markaðinum. Fyrirhugðum breytingum á MAR er ætlað að bregðast við framangreindu og mæla í því skyni fyrir um að í langvarandi ferli skuli aðeins birta upplýsingar í tengslum við þann atburð sem ætlað er að ljúka ferlinu, eftir að sá atburður hefur átt sér stað. Felur þetta í sér talsverðar breytingar frá núgildandi rétti þar sem tilkynningarskyldar innherjaupplýsingar geta myndast í langvarandi ferli jafnvel þótt umtalsverð óvissa sé um hvort að viðkomandi aðstæður eða atburður gangi eftir. Álykta má að breytingarnar – verði þær að veruleika – komi til með að auka réttarvissu um hvenær tilkynningarskyldar innherjaupplýsingar liggja fyrir, létta á kostnaði útgefenda og hlúa betur að lögmætum hagsmunum þeirra. Ekki verður annað séð en að breytingunum takist þetta án þess að stofna markmiðum um samhverfu í dreifingu upplýsinga og fjárfestavernd í hættu.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2024-05-28T13:51:37Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2024-05-28T13:51:37Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2024-05-28T13:51:38Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2024-05-19T19:10:39Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2024-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/47404</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Lögfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Meistaraprófsritgerðir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Verðbréfamarkaðsréttur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Innherjaviðskipti</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Hvenær ber útgefanda fjármálagerninga að birta innherjaupplýsingar? : fyrirhugaðar breytingar á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 596/2014 um markaðssvik og áhrif þeirra á útgefendur og fjárfesta.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>