<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-29T18:58:07Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/47560" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/47560</identifier><datestamp>2025-07-03T14:49:01Z</datestamp><setSpec>com_1946_35056</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_35057</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Helga Rún Jóhannsdóttir 1996-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Þóroddur Sveinsson 1956-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Friederike Dima Danneil 1981-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Belgjurtir eru ræktaðar út um allan heim. Á Íslandi hafa aðallega verið ræktaðar fjölærar tegundir, svo sem rauð- og hvítsmári. Gerðar hafa verið nokkrar tilraunir með einærar fóðurbelgjurtir í gegnum árin en niðurstöður þeirra hafa ekki leitt til almennrar notkunar. Með aukinni áherslu á loftslagsmálum og verðhækkun á nituráburði er áhugi fyrir belgjurtum að aukast. Einn af stórum kostum þess að rækta belgjurtir er samlíf þeirra við Rhizobium bakteríur, en geta þær myndað rótarhnýði á rótum belgjurta og bundið nitur (N2) úr andrúmsloftinu í ammoníum (NH4+). Geta plantan og nærliggjandi plöntur nýtt sér það í stað tilbúins N áburðar. Sumurin 2022 og 2023 voru gerðar þrjár tilraunir hvort ár með einærar fóðurbelgjurtir. Árið 2022 á Mið-Fossum, þar var gerð ein tegunda- og yrkjatilraun með 6 tegundum og 11 yrkjum, 1 heilsæðistilraun með 3 heilsæðisgerðum og 3 sláttutímum og 1 sáðmagns-, N- áburðaskammta- og yrkjatilraun. Var mikið um skakkaföll, meðal annars vegna lágs sýrustigs í jarðveginum og kálflugu og var því ákveðið að endurtaka tilraunirnar á Ásgarðshólnum á Hvanneyri sumarið 2023. Var skipulagi breytt á milli ára. Tilraunirnar það árið voru ein tegunda- og yrkjatilraun með 3 tegundum og 7 yrkjum, 6 sem voru einnig árið áður. Heilsæðistilraun með 3 heilsæðisblöndum og 1 byggheilsæði í hreinrækt til samanburðar, var 1 heilsæðisblandan með tveimur mismunandi áburðarskömmtum og þar með 5 heilsæðisgerðir í heildina í einum sláttutíma. Einnig var sáðmagns- og N-áburðarskammtatilraunin endurtekin en eingöngu með 1 yrki, Ingrid, og voru áburðarskammtarnir stækkaðir lítillega á milli ára. Fundust engin rótarhnýði á plöntum á Mið-Fossum árið 2022 sem kom niður á heildaruppskeru og próteininnihaldi kúabelgjanna. En það fundust rótarhnýði í tilraunum árið 2023 og var bæði heildaruppskera og próteininnihald meira það ár. Erturnar voru með marktækt mesta uppskeru, bæði árin. Næringarskortur hrjáði bæði repju og ertur í heilsæði þannig að niðurstöður úr þeim tilraunum voru ekki eins og við var að búast. Gaf mesti sáðskammturinn mesta uppskeru í sáðmagnstilrauninni og árið 2022 gaf mesti N-áburðarskammturinn mesta uppskeru, þar sem niturbindingar Rhizobium naut ekki við, en árið 2023 þar sem niturbinding var til staðar var ekki marktækur munur á milli áburðarskammta. &#xd;
Orðið kúabelgir er nýyrði sem var sérstaklega fundið upp til að vekja athygli á þessu verkefni. Kúabelgir er hér notað sem samheiti yfir einærar fóðurbelgjurtir fyrir kýr. &#xd;
&#xd;
Lykilorð: Einærar fóðurbelgjurtir, ertur, hestabaunir, fóðurlúpína, logasmári, fóðurflækja, loðflækja, heilsæði, sáðmagn, N-áburðarskammtar.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="sponsorship" lang="is">Þróunarsjóður nautgriparæktarinnar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2024-06-06T12:45:25Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2024-06-06T12:45:25Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2024-06-06T12:45:26Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2024-06-05T12:34:05Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2024-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/47560</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Búvísindi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Einærar fóðurbelgjurtir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Ertur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hestabaunir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Fóðurlúpína</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Logasmári</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Fóðurflækja</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Loðflækja</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Heilsæði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Sáðmagn</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">N-áburðarskammtar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Kúabelgir Uppskera og fóðurgildi einærra belgjurta fyrir mjólkurkýr</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="en">Cow-legumes; yield and nutritional value in annual legumes for dairy cows</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>