<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-02T08:00:39Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/47681" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/47681</identifier><datestamp>2024-06-25T11:32:23Z</datestamp><setSpec>com_1946_6870</setSpec><setSpec>com_1946_6001</setSpec><setSpec>col_1946_34328</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn í Reykjavík</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Kristín Harðardóttir 1976-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Agnes Hólm Gunnarsdóttir 1974-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Í þessari rannsókn eru til skoðunar vegferðir í tveimur stafrænum verkefnum á Landspítala, annars vegar verkefni við þróun og innleiðingu Landspítalaappsins og hins vegar innleiðingu á lyfjafyrirmælakerfi Cato og lokuðu lyfjaferli á krabbameinsdeild. Tilgangur með rannsókninni er að meta frammistöðu þessara verkefna út frá hugmyndafræði um afburðastjórnun. Eins og orðið gefur til kynna felst afburðastjórnun í því að ná framúrskarandi árangri í gegnum stjórnunaraðferðir. Umfjöllun um afburðastjórnun teygir sig inn á mörg svið stjórnunar, þar á meðal verkefnastjórnun. Samkvæmt módelinu tryggja afburðaverkefni hátt ánægjustig hinna ýmsu hagsmunaaðila. Eitt þeirra viðmiða sem afburðalíkön nota fyrir framúrskarandi árangur í verkefnum er ánægja starfsfólks. Afmörkun þessarar rannsóknar felst í að meta frammistöðu í verkefnunum eingöngu út frá ánægju hagsmunahópsins starfsfólk. Leitast er við að svara rannsóknarspurningunni: Hvernig getur Landspítalinn staðið að þróun og innleiðingu stafrænna lausna svo ferlið og lausnin skili starfsfólki ánægju og virði í anda afburðastjórnunar? Tekin voru viðtöl við átta starfsmenn Landspítala sem hafa innsýn í verkefnin sem til skoðunar eru. Í undirbúningi rannsóknarinnar og gagnaúrvinnslu var stuðst við afburðalíkanið IPMA Project Excellence Model (IPMA PEM). Líkanið var notað til að meta hversu vel stjórnunaraðferðir í verkefnunum fylgdu aðferðafræði módelsins og hver áhrifin væru á ánægju starfsfólks. Spítalinn leggur áherslu á stafræna framþróun, stöðugar umbætur og verkefnastjórnun. Áskoranir við þróun og innleiðingu í viðamiklum stafrænum verkefnum á Landspítala eru margvíslegar því spítalinn er einn stærsti vinnustaður landsins og býr við verulega flókið og umfangsmikið tækniumhverfi. Álag á starfsmenn spítalans er oft á tíðum mikið og starfsumhverfið krefjandi sem gerir starf verkefnastjóra í stafrænum umbótaverkefnum vandasamt. Skortur á tíma starfsfólks getur hindrað framgang verkefnanna og jafnframt hefur stjórnun í verkefnunum ýmist jákvæð eða neikvæð áhrif á álag og ánægju starfsfólks. Vonast er til þess að hægt verði að nýta niðurstöður rannsóknarinnar til að stuðla að aukinni ánægju starfsfólks í tengslum við þróun og innleiðingu stafrænna lausna á Landspítala. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að fylgni stjórnunaraðferða verkefnanna við aðferðafræði IPMA PEM haldist í hendur við ánægju starfsfólks.&#xd;
Efnisorð: verkefnastjórnun, afburðastjórnun, IPMA PEM, Landspítali</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2024-06-12T11:04:50Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2024-06-12T11:04:50Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2024-06-12T11:04:50Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2024-05-29T16:01:45Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2024-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/47681</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Verkefnastjórnun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Meistaraprófsritgerðir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Stjórnunarhættir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Starfsánægja</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Sjúkrahús</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="en">Master of project management</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Í ljósi fræða um afburðastjórnun : þróun og innleiðing stafrænna lausna á Landspítala</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>