<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-03T19:18:17Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/47737" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/47737</identifier><datestamp>2025-09-10T12:25:20Z</datestamp><setSpec>com_1946_35053</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_35054</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Narfi Hjartarson 1977-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Bjarni D. Sigurðsson 1966-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Páll Sigurðsson 1984-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Víða um heim er unnið að mótvægisaðgerðum gegn loftslagsbreytingum með því að auka kolefnisbindingu og með því ná til baka hluta af því CO2 sem losaður hefur verið út í andrúmsloftið með bruna jarðefnaeldsneytis og skógareyðingu. Nýskógrækt er ein af þeim aðgerðum sem beitt er til að binda kolefni. Nýlega hafa verið settar fram tilgátur hér á landi um að nýskógrækt á graslendi geti mögulega leitt til minnkunar á kolefnisforða vegna neikvæðra áhrifa á kolefnisforða jarðvegs. Hafa þessar tilgátur byggt á ákveðnum erlendum rannsóknum sem hafa sumar sýnt að kolefnisforði jarðvegs getur mögulega minnkað eða að minnsta kosti ekki aukist í kjölfar nýskógræktar á graslendi. Hér á landi hafa einungis birst tvær rannsóknir á breytingum á heildar kolefnisforða vistkerfisins í kjölfar nýskógræktar á graslendi.&#xd;
Markmið þessarar rannsóknar var að meta breytingar á jarðvegsbyggingu, jarðvegsefnafræði og kolefnisforðum ofan- og neðanjarðar 50 árum eftir að sitkagreniræktun hófst á graslendi á Reykjum í Ölfusi. Til samanburðar var notað nærliggjandi óbeitt graslendi og einungis horft til efstu 10 cm jarðvegsins.&#xd;
Helstu niðurstöður voru að það var enginn marktækur munur á rúmþyngd né N% milli landgerðanna, en bæði C/N hlutfall og C% í jarðveginum hækkaði marktækt. Einnig súrnaði yfirborðslag jarðvegsins marktækt í kjölfar nýskógræktarinnar, en náði ekki niður fyrir pH 5 sem er það stig sem viðkvæmustu jarðvegslífverur fara að hljóta skaða af. Heildarkolefnisforði í öllu vistkerfinu var marktækt mun meiri í skóginum og munaði þar mest um aukningu í kolefnisforða í lífmassa ofan- og neðanjarðar, en heildarmagn í jarðvegi jókst einnig marktækt í skóginum. Meðal árleg binding á CO2 í öllu skógarvistkerfinu nam 9,7 t CO2/ha á ári og þar af nam meðal árleg binding í neðanjarðar lífmassa og lífrænu efni í efstu 10 cm jarðvegsins 2,7 t CO2/ha á ári.&#xd;
Það er annmarki á þessari rannsókn að hún náði einungis niður á 10 cm dýpi í steinefnajarðvegi. Gera þarf fleiri rannsóknir á nýskógrækt á graslendi, þar sem mælingar á kolefnisforðum vistkerfisins ná lengra niður í jarðvegsniðin.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2024-06-13T14:19:36Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2024-06-13T14:19:36Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2024-06-13T14:19:36Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2024-06-13T14:19:36Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2024-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/47737</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Skógrækt</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Graslendi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Jarðvegskolefni</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Kolefnisbinding</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Landnýting</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Sitkagreni</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Breytt landnýting</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">LULUCF</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Jarðvegur og kolefnisbinding greniskógar 50 árum eftir gróðursetningu á graslendi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="en">Soil properties and carbon sequestration in a 50 year old spruce stand established on grassland</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>