<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-29T17:59:21Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/49623" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/49623</identifier><datestamp>2025-10-01T12:50:42Z</datestamp><setSpec>com_1946_2059</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2065</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Katrín Ósk Ásgeirsdóttir 1994-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Svanhildur Þorvaldsdóttir 1978-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Rannsóknarritgerð þessi fjallar um tengslanet í opinberri stjórnsýslu í tengslum við undirbúning og framkvæmd leiðtogafundar Evrópuráðsins sem haldinn var í Hörpu, Reykjavík í maí árið 2023. Markmið ritgerðarinnar er að varpa ljósi á það hvernig tengslanet þróast í litlu samfélagi eins og á Íslandi þegar stórir alþjóðlegir viðburðir eru undirbúnir. Fræðileg umfjöllun ritgerðarinnar byggir á kenningum Koliba, Meek og Zia um tengslanet innan opinberrar stjórnsýslu, kenningum í smáríkjafræðum og kenningum um skipulagsheildir eftir Mintzberg. &#xd;
Í ritgerðinni er að finna greiningu á því hvernig samstarfi var háttað á milli stofnana, ráðuneyta og einkaaðila við undirbúning fundarins. Áhersla er lögð á að leggja mat á hvernig smæð íslenskrar stjórnsýslu hafði áhrif á samstarfs- og skipulagsaðferðir, ákvarðanatökur og ábyrgðarskyldur innan tengslanetsins. Höfundur notaðist við eigindlegar rannsóknaraðferðir, eins og viðtöl og greiningu opinberra gagna til að fá dýpri innsýn í samstarfs- og skipulagsferlið. Smæðin í íslenskri stjórnsýslu gerði skipulagið auðveldara og stuðlaði það að beinum samskiptum milli þátttakenda. &#xd;
Tengslanetið sem myndaðist við undirbúning og framkvæmd fundarins flokkast sem stjórnsýslulegt tengslanet þar sem sérstakt samhæfingarteymi var sett á laggirnar sem stýrði verkefninu, en jafnframt byggði verkefnið á trausti, samstöðu og óformlegum samskiptum sem eru oft einkenni lítillar stjórnsýslu. Rannsóknin dregur einnig fram hvernig íslensk stjórnsýsla nýtir sér tengslanet sem stjórnunartæki við að takast á við umfangsmikil verkefni. Einnig sýnir hún fram á mikilvægi skýrrar ábyrgðar, samhæfingar og sveigjanleika í opinberum verkefnum á alþjóðavettvangi. &#xd;
Rannsóknin sýnir fram á það að íslensk stjórnvöld og stjórnsýsla getur aðlagað sig að krefjandi verkefnum með því að nýta styrkleikana sem liggja í smæðinni. Rannsóknin dregur einnig fram mikilvægi þess að vera með skýrar ábyrgðarkeðju, sveigjanleg vinnubrögð og skýra verkferla þegar kemur að því að skipuleggja alþjóðlega stórviðburði. &#xd;
Niðurstöður ritgerðarinnar geta gagnast stjórnvöldum, íslenskri stjórnsýslu, skipuleggjendum stórviðburða og þeim sem starfa í opinberri stjórnsýslu við að þróa áfram árangursríkar aðferðir varðandi samstarf í náinni framtíð.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2025-04-30T10:01:02Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2025-04-30T10:01:02Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2025-04-30T10:01:03Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2025-04-29T16:36:27Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2025-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">https://hdl.handle.net/1946/49623</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Opinber stjórnsýsla (námsgrein)</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Evrópusamstarf</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Tengslanet</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Leiðtogafundur Evrópuráðsins á Íslandi: Tengslanet í krafti smæðarinnar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>