<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-30T15:24:27Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/49958" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/49958</identifier><datestamp>2025-05-08T09:44:52Z</datestamp><setSpec>com_1946_2059</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2066</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Sigurður Ingi Sigurpálsson 1978-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Marías Halldór Gestsson 1973-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Sigurður Jóhannesson 1961-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Í þessari ritgerð er skoðað hvort þéttingarstefna Reykjavíkurborgar hafi haft áhrif á byggingarkostnað íbúðarhúsnæðis og þar með á hækkun fasteignaverðs á árunum 2010–2025, umfram verðlagsþróun. Mikil hækkun fasteignaverðs hefur átt sér stað og sem dæmi má nefna að verðgildi íbúðar í Laugardalnum hefur nær þrefaldast á tímabilinu, þó verðlag hafi aðeins hækkað um 74,5%. Rannsóknarspurningin er sú hvort hækkun fasteignaverðs á tímabilinu megi rekja til aukins byggingarkostnaðar sem tengist þéttingarstefnu Reykjavíkurborgar, eða hvort aðrir þættir svo sem framboðsskortur, lóðaskortur, lánakjör og aukin eftirspurn hafi meiri áhrif. Gagnaöflun fól í sér greiningu á verðþróun fasteigna, byggingarvísitölu og neysluvísitölu, auk viðtala við aðila í byggingargeiranum. Sérstök áhersla er lögð á að meta hvernig þétting byggðar og stefna borgaryfirvalda hafa mótað markaðinn, og hvort sú stefna hafi leitt til aukins byggingarkostnaðar. Markmiðið er að varpa ljósi á hverjir helstu drifkraftar hækkunar fasteignaverðs eru.&#xd;
Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að ekki er einhlýt skýring á hækkuninni. Þær aðstæður hafi skapast á tímabilinu að framboð nær ekki að halda í við eftirspurn og það veldur þrýstingi á íbúðamarkaðinn sem ýtir verðinu upp. Þéttingarstefna Reykjavíkurborgar skýrir hækkunina að hluta en um er að ræða 2-7% hærri byggingarkostnað á þéttingarreitum og hærri kostnað vegna lóðakaupa. Þá er það mat verktaka að lóðaverð hafi hækkað verulega og sé í dag um 30% af byggingarkostnað nýbygginga á þéttingarreitum. Aðrir þættir sem valda aukinni eftirspurn svo sem aukinn kaupmáttur, aðgengi að lánum, vaxtastig, lánakjör, fólksfjölgun og ásókn í að fjárfesta í íbúðarhúsnæði til að svara eftirspurn ferðamanna eftir gistingu í heimahúsum skýra einnig hækkunina. &#xd;
Höfundur er húsasmíðameistari, rak byggingaverktakafyrirtæki í 20 ár og hefur talsverða reynslu af byggingu mannvirkja og íbúðarhúsnæðis. Höfundur hefur einnig lokið diplomanámi í byggingaiðnfræði og rafiðnfræði frá Háskólanum í Reykjavík og nýttist sú þekking vel við vinnslu rannsóknarinnar.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2025-05-08T09:44:51Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2025-05-08T09:44:51Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2025-05-08T09:44:52Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2025-05-07T18:48:29Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2025-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">https://hdl.handle.net/1946/49958</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hagfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Þétting byggðar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Fasteignamat</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Reykjavík</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Áhrif þéttingarstefnu Reykjavíkurborgar á byggingarkostnað: Skýrir stefnan hækkun fasteignaverðs í Reykjavík á árunum 2010 -2025 eða er öðrum þáttum um að kenna?</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>