<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-29T12:29:24Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/5009" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/5009</identifier><datestamp>2018-10-15T13:56:35Z</datestamp><setSpec>com_1946_2062</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2077</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Ásta Kristín Benediktsdóttir 1982-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Jón Karl Helgason 1965 (bókmenntafræðingur)</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" lang="is">Ritgerðin er lokuð til júlí 2013</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Nafn Jakobínu Sigurðardóttur (1918–1994) virðist hafa fallið á milli þils og veggjar í&#xd;
umræðu um þá endurskoðun á íslensku skáldsagnaformi sem hófst um miðjan 7.&#xd;
áratug 20. aldar. Þrátt fyrir að hafa skrifað bækur sínar á tímabilinu 1959–1994 og&#xd;
frásagnarform fjölmargra verka hennar sé óvenjulegt og nýstárlegt – jafnvel einsdæmi&#xd;
– er Jakobínu ekki getið í öllum yfirlitsgreinum um íslenkar bókmenntir eftir 1960. Í&#xd;
þessari umfjöllun er leitast við að sýna fram á að Jakobína eigi skilið að vera talin&#xd;
einn af formbyltingarhöfundum íslenskrar sagnagerðar.&#xd;
Allar skáldsögur og smásagnasöfn Jakobínu eru til umfjöllunar hér og&#xd;
frásagnaraðferð þeirra er m.a. greind með hjálp hugrænnar frásagnarfræði (e.&#xd;
cognitive narratology). Fræðin, sem eru enn fremur lítt þekkt hér á landi, eru kynnt&#xd;
ítarlega í inngangskafla sem og jafnóðum við greiningu á sögunum. Í 2. kafla er&#xd;
fjallað um persónusköpun í smásögunni „Veginum upp á fjallið“ (Vegurinn upp á&#xd;
fjallið 1990) og skáldsögunum Dægurvísu (1965) og Snörunni (1968). Einræður og&#xd;
samtöl í ýmsum sögum Jakobínu eru til umfjöllunar í 3. kafla og í 4. kafla er&#xd;
gríðarlega margslungin og einstök frásagnaraðferð Lifandi vatnsins – – – (1974)&#xd;
rannsökuð. Í 5. kafla er þróun höfundarverks skáldkonunnar skoðuð, m.a. með tilliti&#xd;
til hlutverks sögumanns og höfundar í frásögninni, og greint frá hugmyndum um&#xd;
frásagnartækni sem beinlínis eru til umfjöllunar í verkunum. Þessi þróun og&#xd;
frásagnarfræðiumræða í sögum Jakobínu er einnig borin saman við fræðiskrif og&#xd;
skáldverk Halldórs Laxness.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned" lang="is">2010-05-07T11:47:06Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available" lang="is">2010-05-07T11:47:06Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2010-05-07T11:47:06Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/5009</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Almenn bókmenntafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Íslenskar bókmenntir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Jakobína Sigurðardóttir 1918-1994</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Bókmenntagreining</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">„Form og stíll örðugt viðfangs.“ Frásagnaraðferð í verkum Jakobínu Sigurðardóttur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>