<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-28T08:10:30Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/50563" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/50563</identifier><datestamp>2025-09-11T15:34:26Z</datestamp><setSpec>com_1946_35056</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_35057</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Logi Sigurðsson 1992-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Jóhannes Sveinbjörnsson 1970-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Eyjólfur Kristinn Örnólfsson 1975-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Tilraun var gerð með að fóðra lambgimbrar á tvo vegu varðandi kjarnfóðurgjöf og kanna í framhaldi hvort marktækur munur yrði á gripunum sjálfum með tilliti til þunga, holdastiga og frjósemi sem og hvort marktækur munur væri á afurðum eftir gemlingsárið. Markmið verkefnisins var að kanna hvort meiri árangur fengist með því að fóðra gimbrar á kjarnfóðri allan veturinn í stað þess að byrja að gefa þeim kjarnfóður í janúar. Fóðurmeðferðirnar voru tvær, annars vegar kjarnfóðurgjöf frá nóvember til apríl og hins vegar kjarnfóðurgjöf frá janúar til apríl en heildarmagn kjarnfóðurs var það sama fyrir báðar meðferðir.  &#xd;
 &#xd;
Tilraun þessi var framkvæmd á tilraunabúinu Hesti í Borgarfirði veturinn 2023-2024. Gögn sem notuð voru í tilraunina eru frá árinu 2024.  Ásetningsgimbrar voru 123 haustið 2023 en í tilraunina voru notaðar 100 gimbrar. Þannig pössuðu hóparnir á sitthvora gjafagrindina (um 25 gripir í hóp) og var þá búið að taka frá útlaga í bæði kynbótamati og þyngd. &#xd;
 &#xd;
Niðurstöður sýna að ekki var marktækur munur á þunga gimbra milli hópanna en aftur á móti var marktækur munur á holdastigi milli hópanna frá mars 2024 og fram á vor. Sá hópur sem fékk kjarnfóður yfir lengra tímabil kom betur út hvað það varðar. Ekki reyndist marktækur munur á fæðingarþunga lamba undan gimbrunum nema ef skoðaðir voru sérstaklega tvílembingar, þá voru lömbin undan þeim gimbrum sem fengu kjarnfóður lengur marktækt þyngri. Ekki var marktækur munur á vexti fram að fjallrekstri lamba sem gengu ein undir gimbrunum en hins vegar var marktækur munur ef skoðaður var vöxtur fram á haust, þá voru lömb sem gengu undir gimbrunum sem höfðu fengið kjarnfóður yfir lengra tímabil þyngri. Ekki reyndist marktækur munur á fallþunga lamba undan gimbrunum. &#xd;
&#xd;
Niðurstöður þessarar rannsóknar benda til þess að betra sé að gefa kjarnfóður yfir lengra tímabil þó að ekki komi fram marktækur munur á öllum þeim þáttum sem voru skoðaðir.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2025-06-11T10:17:57Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2025-06-11T10:17:57Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2025-06-11T10:17:59Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2025-04-30T10:37:09Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2025-04</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">https://hdl.handle.net/1946/50563</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Búvísindi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Kjarnfóðurgjöf</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Gimbrar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Þungi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Holdastig</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Afurðir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Áhrif tímalengdar kjarnfóðurgjafar á vöxt og afurðir lambgimbra</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="en">The effect of duration of concentrate feeding on growth and production of ewe lambs</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>