<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-30T20:33:04Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/51837" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/51837</identifier><datestamp>2026-01-12T09:46:53Z</datestamp><setSpec>com_1946_2059</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2065</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Ingibjörg Andrea Hallgrímsdóttir 1993-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Gyða Margrét Pétursdóttir 1973-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Efni þessarar meistararitgerðar er ofbeldi í nánum samböndum (e. intimate partner violence, IPV) innan hinsegin samfélagsins á Íslandi. Ofbeldi í nánum samböndum getur birst í andlegu-, fjárhagslegu-, líkamlegu-, og kynferðislegu ofbeldi sem gerandi beitir þolanda. Rannsóknir á þessu viðfangsefni á Íslandi hafa verið takmarkaðar til þessa, og því er lítið vitað um það, að hve miklu leyti jaðarsetning hinsegin fólks hefur áhrif á upplifun þess af ofbeldi í nánum hinsegin samböndum í íslensku samhengi. Erlendar rannsóknir benda til þess að jaðarhópsálag (e. minority stress) og sambandsfordómar (e. relationship stigma) hafi neikvæð áhrif á gæði hinsegin sambanda. Lagaleg og félagsleg staða hinsegin fólks á Íslandi telst sterk í alþjóðlegum samanburði. Þrátt fyrir það eru þessir þættir teknir til skoðunar til að varpa ljósi á reynslu þolenda ofbeldis í nánum hinsegin samböndum, í þessu tiltekna samfélagslega og menningarlega samhengi.&#xd;
Rannsóknin byggir á eigindlegum aðferðum, þar sem tekin voru fjórtán hálfstöðluð viðtöl við þolendur ofbeldis í nánum hinsegin samböndum. Í greiningunni er fjallað um ólíkar birtingarmyndir ofbeldis, þar á meðal hvernig andlegt, fjárhagslegt, líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi birtist í hinsegin samböndum. Jafnframt eru afleiðingar ofbeldisins á þolendur skoðaðar ásamt því hvernig ríkjandi staðalmyndir og jaðarsetning hinsegin samfélagsins hefur áhrif á afleiðingar, berskjöldun og úrvinnslu. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að ofbeldi í nánum hinsegin samböndum einkennist oft af valdaójafnvægi sem á rætur að rekja til hinseginleika sambandsins. Gerendur sem höfðu gjarnan verið opin um kynhneigð eða kynvitund sína í lengri tíma, voru betur tengd hinsegin samfélaginu eða höfðu meiri reynslu af hinsegin samböndum en þolendur og það var meðal þess sem skapaði ójafnvægi innan sambandanna. Afleiðingar ofbeldisins fyrir þolendur voru félagslegar, fjárhagslegar og heilsufarslegar. Samtvinnun mismunabreyta (e. intersectionality) virtist auka alvarleika þessara afleiðinga, á meðan kynjaðar staðalmyndir um gerendur og þolendur höfðu áhrif á getu þolenda til að greina ofbeldið, sem og vilja þeirra til þess að opna sig um það. Slíkar staðalmyndir mótuðu einnig viðbrögð sem þolendur fengu þegar þau opnuðu sig um ofbeldið, bæði við sér nákomna og þegar þau leituðu eftir faglegri aðstoð.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2026-01-12T09:46:47Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2026-01-12T09:46:47Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2026-01-12T09:46:53Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2026-01-11T18:03:23Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2026-01</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">https://hdl.handle.net/1946/51837</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Kynjafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hinsegin fræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Heimilisofbeldi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Ekki alltaf glimmer og Pride: Ofbeldi í nánum hinsegin samböndum</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>