<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-11-28T01:32:52Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/52108" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/52108</identifier><datestamp>2026-02-14T15:39:43Z</datestamp><setSpec>com_1946_2007</setSpec><setSpec>com_1946_1992</setSpec><setSpec>col_1946_2008</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn á Bifröst</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Kristinn Gauti Einarsson 1987-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Stefán Valgarð Kalmansson 1961-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Ritgerð þessi fjallar um fjármálastjórn sveitarfélaga á Íslandi með áherslu á skuldastýringu, áhættumat og framkvæmd fjárhagsáætlana. Markmið rannsóknarinnar er að greina hvernig ársreikningar og fjárhagsáætlanir endurspegla raunverulega stöðu sveitarfélaga og hvernig stjórnendur upplifa áskoranir í fjármálastjórn innan núverandi kerfisramma. Rannsóknin byggir á blandaðri aðferð. Annars vegar megindlegri greiningu á ársreikningum og fjárhagsáætlunum sveitarfélaga fyrir árið 2024 og hins vegar eigindlegum viðtölum við sveitarstjóra og fjármálastjóra í sveitarfélögum af mismunandi stærð. Rannsóknin byggir á kenningum um ábyrg fjármál og jafnvægi á milli sjálfstæðis og aðhalds í opinberri stjórnsýslu.&#xd;
Helstu niðurstöður sýna að íslensk sveitarfélög beita almennt ábyrgð og varfærni í fjármálastjórn. Rekstrarleg staða þeirra er stöðug og frávik milli áætlana og rauntalna er að jafnaði hófleg. Stærri sveitarfélög búa yfir tæknilegri lausnum og meira svigrúmi en smærri sveitarfélög leggja meiri áherslu á samráð og varfærni. Kerfisrammi fjármála sveitarfélaga tryggir jafnvægi og eftirlit en er að hluta til of einsleitur og tekur ekki nægilega mið af fjölbreytileika sveitarfélaga. Viðmælendur leggja áherslu á að þörf sé á að bæta samræmi í bókhaldsstöðlum og stigskiptum viðmiðum í eftirliti sem endurspegla mismunandi aðstæður og getu sveitarfélaga.&#xd;
Rannsóknin dregur upp mynd af því hvernig sveitarfélög vinna að því að stýra skuldum og áhættu og varpar ljósi á hvernig kerfislægar takmarkanir og óvissa geta haft áhrif á sjálfbærni og stefnumótun í opinberum fjármálum. Niðurstöðurnar benda til að framtíð fjármálastórnunar sveitarfélaga á Íslandi felist í aukinni stafrænni eftirfylgni, gagnsæi og samvinnu milli ríkis og sveitarstjórnarstigs.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2026-02-14T15:39:39Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2026-02-14T15:39:39Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2026-02-14T15:39:43Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2025-12-01T23:30:33Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2025-12</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">https://hdl.handle.net/1946/52108</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Fjármálastjórnun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Sveitarfélög</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Skuldastýring</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Áhættugreining</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Fjárhagsáætlanir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Ábyrg fjármálastjórn sveitarfélaga</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>