<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-26T08:19:03Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/52276" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/52276</identifier><datestamp>2026-04-15T16:01:16Z</datestamp><setSpec>com_1946_2061</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2069</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Arney Þyrí Guðjónsdóttir 1994-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Berglind Hálfdánsdóttir 1973-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Þórdís Björg Kristjánsdóttir 1972-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Bakgrunnur: Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) mælir með eingöngu brjóstagjöf fyrstu 6 mánuðina eftir fæðingu, en að uppfylla þær ráðleggingar getur verið krefjandi. Vaxandi vísbendingar&#xd;
benda til þess að notkun á ytra oxýtósíni í fæðingu geti haft neikvæð áhrif á þróun brjóstagjafar. Mikil aukning hefur orðið á notkun ytra oxýtósíns (Syntocinon) í fæðingarþjónustu. Lyfið er ýmist notað til framköllun fæðingar, meðhöndlunar á blæðingu eftir fæðingu eða til fyrirbyggingar blæðinga. Síðustu ár&#xd;
hafa rannsakendur beint sjónum sínum að mögulegum neikvæðum áhrifum af notkun ytra oxýtósíns á brjóstagjöf og virkni innra oxýtósíns.&#xd;
Tilgangur og markmið: Markmið þessarar rannsóknar var að skoða tengsl á milli notkunar á ytra oxýtósíns á 1. og/eða 2. stigi fæðingar og brjóstagjafar fyrstu 6 mánuðina eftir fæðingu.&#xd;
Efniviður og aðferð: Rannsóknin er megindleg afturvirk ferilrannsókn (e. a quantitative retrospective cohort study). Rafræn sjúkragögn kvenna og barna sem þáðu ungbarnavernd hjá Heilsugæslu&#xd;
höfuðborgarsvæðisins eftir fæðingu á árunum 2012-2021 voru nýttar til að kanna hvort notkun ytra oxýtósíns í fæðingu tengdist tíðni brjóstagjafar fyrstu 6 mánuðina eftir fæðingu. Brjóstagjöf var metin í sjö skoðunum eftir fæðingu yfir 6 mánaða tímabil og skráð sem: a) eingöngu, b) aðallega, c) með öðru, d) hætt og e) aldrei. Framkvæmd var undirhópagreining eftir ábendingu fyrir notkun ytra oxýtósíns&#xd;
(framköllun fæðingar í samanburði við örvun). Tölfræðileg úrvinnsla var framkvæmd í SPSS.&#xd;
Niðurstöður: Notkun á ytra oxýtósíni á 1. og/eða 2. stigi fæðingar tengist lægra hlutfalli eingöngu brjóstagjafar fyrstu 6 mánuðina eftir fæðingu. Tengslin komu snemma fram eftir fæðingu og héldust yfir rannsóknartímabilið. Munurinn var skýr meðal kvenna sem hófu fæðingu með sjálfkrafa sótt, en veikari&#xd;
og ekki alltaf tölfræðilega marktækur þegar fæðing hófst með framköllun.&#xd;
Ályktanir: Niðurstöðurnar benda til þess að notkun á ytra oxýtósíni á 1. og/eða 2. stigi fæðingar tengist síður hagstæðri þróun brjóstagjafar fyrstu 6 mánuðina eftir fæðingu. Þar sem um afturvirka ferilrannsókn var að ræða er ekki unnt að draga ályktanir um orsakasamband. Niðurstöðurnar gefa þó tilefni til að&#xd;
huga að markvissum stuðningi við brjóstagjöf meðal kvenna sem fá ytra oxýtósín í fæðingu.&#xd;
Lykilorð: Fæðing, brjóstagjöf, inngrip í fæðingu, innra oxýtósín, ytra oxýtósín.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2026-04-15T15:59:53Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2026-04-15T15:59:53Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2026-04-15T15:59:57Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2026-04-15T14:32:53Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2026-03</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">https://hdl.handle.net/1946/52276</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Ljósmóðurfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Fæðing</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Brjóstagjöf</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Inngrip (lækningar)</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Tengsl notkunar ytra oxýtósíns í fæðingu við brjóstagjöf fyrstu sex mánuðina eftir fæðingu. Afturvirk ferilrannsókn</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>