<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-30T03:23:52Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/5280" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/5280</identifier><datestamp>2018-10-15T15:47:05Z</datestamp><setSpec>com_1946_2064</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2107</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Svava Björk Ólafsdóttir 1981-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Katrín Anna Lund 1964-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Í þessari ritgerð eru birtar niðurstöður rannsóknar sem gerð var til að varpa ljósi á leiklist fyrir erlenda ferðamenn í Reykjavík. Menningartengd ferðaþjónusta er mikilvæg í borginni og er leiklist á Íslandi talin vera mjög kraftmikil og sérstök. Leitast var við að svara tveimur rannsóknarspurningum sem myndu á einhvern hátt veita innsýn í þessa afþreyingu fyrir erlenda ferðamenn. Í fyrsta lagi hvert framboðið er af leiklistartengdum viðburðum fyrir erlenda ferðamenn í Reykjavík og í öðru lagi, hvernig viðkomandi aðilar sjá fyrir sér listformið leiklist í Reykjavík með tilliti til ferðaþjónustu fyrir erlenda ferðamenn. Stuðst var við eigindlegar rannsóknaraðferðir í formi viðtala og einnig var lítil viðtalskönnun framkvæmd á gististöðum í borginni. &#xd;
	Helstu niðurstöður voru að framboðið virðist lítið en einungis var um eina sýningu að ræða þegar rannsókn var framkvæmd. Litið var til næstu mánaða og er önnur sýning í bígerð sem og götuleikhús auk þriggja leiklistarhátíða. Talið er að leikhús í hinu opna rými sem og hátíðirnar laði að sér erlenda ferðamenn. Viðmælendur voru sammála um að framboð væri of lítið og að nýta ætti leiklistina í meiri mæli fyrir erlenda ferðamenn. Listaformið leiklist á sér gott orðspor vegna trúar á fyrirbærið en samt sem áður virðist sem svo að lítil virðing sé borin fyrir því. Helstu hömlur voru að mati viðmælenda samvinna ferðaþjónustuaðila og listamanna og skortur á fé. Óskir viðmælenda voru mismunandi: Ferðaþjónustuaðilar vildu fá leiklist í formi kvöldskemmtunar fyrir ferðamenn en listamennirnir vonuðu að gæði yrðu í hávegum höfð við gerð sýninga fyrir erlenda ferðamenn.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned" lang="is">2010-05-14T15:04:46Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available" lang="is">2010-05-14T15:04:46Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2010-05-14T15:04:46Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/5280</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Ferðamálafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Leiklist</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Menningartengd ferðaþjónusta</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Leiklist fyrir erlenda ferðamenn: Framboð og grundvöllur í Reykjavík</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>