<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-26T08:15:08Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/52879" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/52879</identifier><datestamp>2026-05-06T12:37:07Z</datestamp><setSpec>com_1946_2059</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2066</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Katrín Anna Karlsdóttir 2003-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Erla Sólveig Kristjánsdóttir 1958-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Að stofna fyrirtæki krefst hugmynda, frumkvæðis og þrautseigju, en leiðin frá hugmynd að rekstri ræðst einnig af því hvort frumkvöðlar fá aðgang að fjármagni, upplýsingum og stuðningi þegar mest á reynir. Þrátt fyrir sterka stöðu Íslands í jafnréttisumræðu benda bæði fyrri rannsóknir og reynsla úr atvinnulífi til þess að aðstæður kvenna í frumkvöðlastarfi kunni að vera mótaðar af öðrum þáttum en einungis gæðum viðskiptahugmyndar eða rekstraráætlunar. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á hvernig íslenskir kvenfrumkvöðlar upplifa hindranir í fjármögnun nýrra fyrirtækja í íslensku atvinnulífi. Beitt var eigindlegri rannsóknaraðferð og tekin hálfstöðluð viðtöl við fimm íslenskar konur sem eiga það sameiginlegt að hafa stofnað fyrirtæki, byggt upp rekstur og reynt að afla fjármögnunar á einhverju stigi þess ferils. Gögnin voru greind með þemagreiningu. Niðurstöður sýna að fjármögnunarhindranir birtust ekki aðeins í skorti á fjármagni sem slíku heldur einnig í óskýru aðgengi að upplýsingum, torlesnu stuðningsumhverfi, vægi tengslaneta og mati annarra á trúverðugleika frumkvöðulsins. Þá kom fram að eigið fé, stuðningur fjölskyldu og sjálfsfjármögnun gegndu lykilhlutverki í upphafi rekstrar, á meðan formlegt fjármagn kom oft seint til sögunnar eða alls ekki. Einnig lýstu þátttakendur vanmati, efasemdum og sönnunarbyrði í samskiptum við banka, samstarfsaðila og aðra aðila í rekstrarumhverfinu. Rannsóknin varpar þannig ljósi á hvernig samspil kyns, fjármögnunar og frumkvöðlastarfs mótar reynslu kvenna af því að skapa sér rými í íslensku atvinnulífi.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2026-05-06T12:37:02Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2026-05-06T12:37:02Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2026-05-06T12:37:07Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2026-05-06T12:11:48Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2026-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">https://hdl.handle.net/1946/52879</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Viðskiptafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Frumkvöðlar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Að sækja fjármagn og skapa sér rými: Upplifun íslenskra kvenfrumkvöðla af hindrunum í fjármögnun í íslensku atvinnulífi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>