<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-26T12:54:10Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/53570" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/53570</identifier><datestamp>2026-06-08T14:26:11Z</datestamp><setSpec>com_1946_6867</setSpec><setSpec>com_1946_6001</setSpec><setSpec>col_1946_34317</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn í Reykjavík</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Hrannar Gauti Sigmundsson 2003-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Víkingur Sindri Ólafsson 1990-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Magnús Sveinn Helgason 1974-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Í þessari ritgerð er skýringarmáttur austurrísku hagsveiflukenningarinnar metinn gagnvart hagsveiflum og efnahagslegum óstöðugleika í argentínska hagkerfinu á tímabilinu 1980–2024 og borinn saman við meginstraumskenningar: peningamagnshyggju, ný-keynesíska nálgun og skuldakrísu og fastgengisnálganir. Jafnframt er stefna Javier Milei frá árslokum 2023 greind sem einstök tilraun til beitingar austurrískra hagfræði kenninga á þjóðhagkerfi.&#xd;
Rannsóknin byggir á blandaðri aðferðafræði þar sem eigindleg fræðileg greining er samþætt megindlegri tímaraðagreiningu með gögnum frá BCRA, Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Alþjóðabankanum. Greiningin skiptist í þrjú tímabil: 1980–1991, 1991–2002 og 2002–2024.&#xd;
Niðurstöður sýna að skýringarmáttur ABCT er ekki stöðugur yfir tíma heldur háður stofnanalegu samhengi. Sterkasta samræmið finnst á tímabilinu 1991–2002, þar sem fylgni milli raunvaxta og lánsfjárþenslu er mjög sterk og neikvæð (−0,89) og fylgni milli lánsfjárþenslu og hagvaxtar sterk og jákvæð (0,76), nákvæmlega það mynstur sem kenningin spáir fyrir um. Á tímabilinu 1980–1991 skýrist þróunin betur af peningamagnshyggju þar sem óstýrð peningaprentun og ofurverðbólga ráða för, en á tímabilinu 2002–2024 brotnar orsakakeðja ABCT þar sem lánsfé rennur fremur til óframleiðnar starfsemi en framleiðslulegrar fjárfestingar. Aðhvarfsgreining staðfestir að peningagrunnur skýrir um 62% af breytileika í lánsfjárútþenslu yfir allt tímabilið, en lykilbreytur ABCT eru ekki tölfræðilega marktækar til að skýra hagvöxt þegar öll árin eru sameinuð. Kerfislegir þættir á borð við sveifluhvetjandi ríkisfjármál, hrávöruháð hagkerfi, quasi-fiscal halla og stíft gengisfyrirkomulag skýra þróunina betur en lánsfjárþensla ein og sér.&#xd;
Stefna Milei hefur skilað sögulegum ríkisfjárhagslegum afgangi í fyrsta sinn í 14 ár og dregið verðbólgu úr 211% niður í 31,5%, en félagslegur kostnaður er umtalsverður og jafnvægið enn brothætt. Greiningin sýnir að hrein beiting ABCT á raunverulegt hagkerfi krefst pragmatískra málamiðlana.&#xd;
Helsta niðurstaða ritgerðarinnar er að austurríska hagsveiflukenningin er verðmætt en takmarkað greiningartæki sem skerpar á hlutverki verðmerkja og innri uppbyggingu fjárfestingar, en kemur ekki í stað hefðbundinna kenninga heldur bætist við þær sem viðbótarskýring.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2026-06-08T14:26:07Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2026-06-08T14:26:07Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2026-06-08T14:26:11Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2026-05-20T16:50:04Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2026-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">https://hdl.handle.net/1946/53570</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hagfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hagsveiflur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Argentína</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Austurríska hagsveiflukenningin og hagsveiflur í Argentínu : söguleg greining og fyrstu skref Javier Milei : mat á skýringarmætti austurrísku hagsveiflukenningarinnar í samanburði við meginstraumskenningar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>