<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-01T18:04:31Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/53677" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/53677</identifier><datestamp>2026-06-09T13:57:01Z</datestamp><setSpec>com_1946_35056</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_35057</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Lilja María Pálmarsdóttir 1996-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Sigríður Björnsdóttir 1964-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Markmið þessarar rannsóknar var að skoða hvernig hestahaldi er háttað í hesthúsahverfum í þéttbýli og hvernig daglegt skipulag þess tengist velferð hrossa. Sérstök áhersla var lögð á þætti á borð við húsvist, hreyfingu, útiveru og félagsleg samskipti.&#xd;
Rannsóknin byggði á megindlegri spurningakönnun sem lögð var fyrir hestamenn, þar sem alls 103 einstaklingar tóku þátt. Spurningarnar beindust að aðbúnaði hrossa, daglegu skipulagi og mati þátttakenda á velferð þeirra. Gögn voru unnin með lýsandi tölfræði, auk fylgni- og aðhvarfsgreiningar.&#xd;
Niðurstöður sýndu að hross voru að meðaltali á húsi um 27,5 vikur á ári, útivera þeirra var að jafnaði 13,9 klukkustundir á viku og hreyfing eða þjálfun um 5,4 klukkustundir á viku.&#xd;
Meirihluti hrossa var haldinn í einstaklingsstíum, en flest þeirra höfðu möguleika á einhvers konar snertingu við önnur hross yfir milligerði. Greining á sambandi húsvistar og útiveru sýndi enga eða mjög veika fylgni milli þessara þátta.&#xd;
Þrátt fyrir þessar niðurstöður töldu þátttakendur almennt að velferð hrossa væri góð, sem bendir til mögulegs misræmis milli upplifunar eigenda og raunverulegra aðstæðna hrossa, sérstaklega með tilliti til hreyfingar og félagslegra samskipta.&#xd;
Helstu ályktanir rannsóknarinnar eru að hestahald í þéttbýli einkennist af aðstæðum sem geta takmarkað möguleika hrossa til að sýna eðlilega hegðun. Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að taka mið af náttúrulegum þörfum hrossa við skipulag hestahalds og skapa aðstæður sem stuðla að aukinni hreyfingu og félagslegum samskiptum.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2026-06-09T13:56:57Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2026-06-09T13:56:57Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2026-06-09T13:57:01Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2026-05-05T12:46:53Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2026-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">https://hdl.handle.net/1946/53677</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hestafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hestar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hesthús</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Velferð hrossa</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Húsvist hrossa</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Aðbúnaður hrossa</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Íslenski hesturinn</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Hestahald í þéttbýli: Samspil aðbúnaðar og velferðar hrossa í hesthúsahverfum á höfuðborgarsvæðinu</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>