<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-29T09:57:40Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/53678" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/53678</identifier><datestamp>2026-06-09T13:58:51Z</datestamp><setSpec>com_1946_35056</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_35057</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Saga Björk Jónsdóttir 1991-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Sigríður Björnsdóttir 1964-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Íslensk hrossarækt hefur tekið miklum breytingum á síðustu árum með aukinni notkun sæðinga og markvissara kynbótastarfi. Slík þróun getur haft áhrif á bæði erfðaframfarir og dreifingu erfðaframlags innan stofnsins. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á þróun sæðinga frá árunum 2015-2025 og greina þróun skyldleikaræktar og erfðaframfara í íslenska hrossastofninum á sama tímabili. Notuð voru tvö gagnasöfn úr WorldFeng sem innihéldu annars vegar upplýsingar um fyljunarskráningar og hins vegar samantekt á fæddum hrossum á tímabilinu 2015–2025. Unnið var með breyturnar skráðar fyljanir eftir sæðingar, skráð fædd folöld og stóðhestar í sæðingum. Fyrir hvern árgang skráðra folalda voru reiknuð meðaltöl fyrir kynbótamat (BLUP) og skyldleikaræktarstuðull (F). &#xd;
Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að notkun sæðinga hafði aukist verulega á árabilinu 2015–2025, þar af mest á seinni hluta tímabilsins. Fjöldi fyljana eftir sæðingar áttfaldaðist á sama tíma og fjöldi stóðhesta í sæðingum þrefaldaðist, fór úr 8 í 27 árið 2024. Það samsvaraði um 4% af heildarfjölda stóðhesta í ræktun. Fjöldi sæðinga náði hámarki árið 2024, þegar þær námu 13,42% allra fyljana. &#xd;
Í takti við aukna notkun sæðinga fengu  fáir stóðhestar sífellt meira erfðafræðilegt vægi innan stofnsins. Um 1% stóðhesta, sem eignuðust 50 eða fleiri folöld á ári, voru feður 3,42% fæddra folalda í byrjun tímabilsins en hlutfall afkvæma þeirra var komið í 11,29% árið 2024. Þar á meðal voru 4 stóðhestar með yfir 100 folöld á ári, tveir þeirra þrjú og fjögur ár í röð. Neikvætt samband fannst milli fjölda sæðinga og fjölda skráðra folalda innan sama árs, á þeim árum sem mesta aukning varð í notkun sæðinga. Aukin notkun sæðinga var því ekki að stækka hrossastofninn heldur tengdist fremur áherslu ræktenda á gæði fram yfir magn í ræktuninni.  &#xd;
Meðaltal skyldleikaræktarstuðuls hækkaði úr 2,75% árið 2015 í 3,06% árið 2024. Ekki fannst marktækt samband  milli aukinnar notkunar sæðinga og hækkunar á skyldleikaræktarstuðli enda ekki líklegt að slík áhrif verði sýnileg fyrr en einhverjum kynslóðum síðar. Stöðugar erfðaframfarir mældust í íslenska hrossastofninum en meðal BLUP í árgöngum hækkaði úr um 96 í upphafi tímabilsins í um 106 í lok þess. Ekki var sýnt fram á marktækt samband á milli sæðinga og hækkunar á kynbótamati. Niðurstöðurnar benda til þess að aukin notkun sæðinga hafi átt sér stað á sama tíma og ræktun íslenska hestsins hefur varð markvissari og sérhæfðari, hraðaði þeirri þróun með vaxandi hættu á að hrossastofninn verði einsleitari og virk stofnstærð  minnki.  &#xd;
Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að fylgjast með þróun erfðabreytileika og skyldleikaræktar í íslenska hrossastofninum. Þótt sæðingar geti stuðlað að hraðari erfðaframförum er mikilvægt að viðhalda jafnvægi milli aukinnar notkunar þeirra og varðveislu erfðafjölbreytileika til lengri tíma.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2026-06-09T13:58:47Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2026-06-09T13:58:47Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2026-06-09T13:58:51Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2026-05-08T12:38:51Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2026-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">https://hdl.handle.net/1946/53678</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hestafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Sæðingar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Fyljanir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hrossarækt</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Stóðhestar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Folöld</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">BLUP</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Skyldleikaræktarstuðull</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Þróun sæðinga í íslenskri hrossarækt</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>