<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-27T15:54:40Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/53695" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/53695</identifier><datestamp>2026-06-09T14:25:00Z</datestamp><setSpec>com_1946_35059</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_35060</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Nína Berglind Sigtryggsdóttir 2001-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Bragi Bergsson 1978-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Silja Huld Árnadóttir 1975-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Markmið þessa verkefnis er að leggja mat á aðgengi á grunnskólalóðum í Reykjavík út frá hugmyndafræði algildrar hönnunar og móta hönnunartillögur sem stuðla að öruggu og inngildandi skólaumhverfi fyrir alla notendur. Til grundvallar liggja vettvangsathuganir á fimm skólalóðum, Breiðholtsskóla, Dalskóla, Vesturbæjarskóla, Laugarnesskóla og Klettaskóla sem valdar voru með hliðsjón af aldri, stærð og þjónustuhlutverki. Lóðirnar voru greindar eftir matskvarða sem byggður var á viðmiðum Reykjavíkurborgar (2025) og ÖBÍ réttindasamtaka og skiptist í sex meginflokka: Aðkomu og rötun, stíga og yfirborð, sjónrænt aðgengi, leiksvæði og búnað, svæðaskiptingu og skynáreiti og dvalarsvæði. Niðurstöðurnar voru síðan settar í samhengi við starfsáætlanir skólanna sjálfra og alþjóðlegar mannréttindaskuldbindingar.&#xd;
Niðurstöður greiningarinnar sýna að lóðirnar standast viðmið algildrar hönnunar í mjög ólíkum mæli. Dalskóli, sem byggður var frá grunni á tímum þegar vitund um aðgengi hafði þegar náð inn í íslenska hönnunarumræðu, sker sig úr með heildareinkunnina 14 af 18, en Laugarnesskóli, sem fær einkunnina „Ekki til staðar” í aðkomu vegna einnar sérleiðar fyrir hreyfihamlaða, fær heildareinkunnina 7. Sjónrænt aðgengi reyndist veikasti flokkurinn yfir alla rannsóknina og kom á óvart að jafnvel Klettaskóli, sem er sérskóli, sýnir sömu kerfisvilluna og almennir skólar. Samanburður milli starfsáætlana skólanna og raunverulegra niðurstaðna leiddi í ljós áberandi bil milli yfirlýstrar stefnu og hönnunar á lóðunum.&#xd;
Verkefnið skilar bæði fræðilegum grunni og hagnýtum hönnunartillögum sem byggjast á sex flokkum matskvarðans ásamt forgangsverkefnum fyrir hverja af lóðunum fimm. Niðurstöðurnar benda til þess að hugmyndafræði algildrar hönnunar sé til staðar í íslenskri hönnunarumræðu og í skólastefnum borgarinnar en að innleiðingu hennar í raunverulegri hönnun lóðanna sé verulega ábótavant, bæði á eldri lóðum, nýjum og endurgerðum og jafnvel á sérskóla. Til að brúa þetta bil þarf bæði kerfisbundna eftirfylgni borgarinnar með hönnunarleiðbeiningum sínum og markvissa þjálfun hönnuða um algilda hönnun.&#xd;
&#xd;
Lykilorð: algild hönnun, aðgengi, grunnskólalóðir, inngilding, leiksvæði, landslagsarkitektúr</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2026-06-09T14:24:56Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2026-06-09T14:24:56Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2026-06-09T14:25:00Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2026-05-16T22:43:26Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2026-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">https://hdl.handle.net/1946/53695</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Landslagsarkitektúr</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Algild hönnun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Aðgengi fatlaðra</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Grunnskólalóðir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Inngilding</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Leiksvæði barna</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Algild hönnun á grunnskólalóðum í Reykjavík: Mat á aðgengi og hönnunartillögur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>