<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-03T15:43:02Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/53705" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/53705</identifier><datestamp>2026-06-09T14:48:55Z</datestamp><setSpec>com_1946_35053</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_35054</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Hjördís Jónsdóttir 1993-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Aðalsteinn Sigurgeirsson 1962-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Hreinn Óskarsson 1971-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Birkiskógar gegna mikilvægu hlutverki í vistkerfum Íslands og eru lykilþáttur í landgræðslu á rýru og rofnu landi. Lifun birkis við slíkar aðstæður getur þó verið takmörkuð og því mikilvægt að skoða hvort tegundablöndun geti bætt árangur við skógrækt. Slík nálgun getur haft áhrif á samspil plantna, nýtingu næringarefna og þol gagnvart álagi frá umhverfi.&#xd;
Í þessari rannsókn var lifun ilmbjarkar (Betula pubescens) skoðuð í tilraunareitum á tveimur svæðum á Suðurlandi, annars vegar á Leiðvelli og hins vegar í Skarfanesi. Settir voru upp mismunandi tilraunaliðir þar sem birki var gróðursett í óblandaða reiti og hins vegar í tegundablandaða reiti með eftirfarandi tegundum; stafafuru, elri, jörfavíði og alaskaösp. Gagnasöfnun fór fram sumarið 2022, tveimur árum eftir gróðursetningu, þar sem fjöldi lifandi plantna var skráður í hverjum reit. Niðurstöður byggja á samanburði milli tilraunaliða og milli svæða.&#xd;
Helstu niðurstöður sýndu að mikill munur var á lifun plantna milli svæða. Á Leiðvelli var lifun almennt lág og birki sýndi þar minni lifun en flestar aðrar tegundir. Í Skarfanesi var lifun hins vegar mun hærri og birki reyndist þar sú tegund sem hafði hæsta lifun, ásamt elri og alaskaösp. Niðurstöður benda til þess að tegundablöndun geti haft áhrif á lifun birkis, þó áhrifin séu mismunandi eftir aðstæðum og samsetningu tegunda.&#xd;
Rannsóknin undirstrikar mikilvægi þess að taka mið af staðbundnum umhverfisskilyrðum við skipulagningu skógræktar. Tegundaval og tegundablöndun geta skipt máli fyrir árangur, sérstaklega á erfiðum landssvæðum, og geta stuðlað að stöðugri framvindu gróðurs og bættri nýtingu lands til lengri tíma.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2026-06-09T14:48:51Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2026-06-09T14:48:51Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2026-06-09T14:48:55Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2026-05-04T14:57:59Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2026-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">https://hdl.handle.net/1946/53705</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Skógfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Birki</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Landgræðsla</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Rofið land</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Tegundablöndun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Sandlendi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Áhrif tegundablöndunnar á lifun birkis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Influence of Species Composition on the Survival of Birch</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>