<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-27T16:54:23Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/53708" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/53708</identifier><datestamp>2026-06-09T15:03:29Z</datestamp><setSpec>com_1946_35059</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_35061</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Ásrún Óskarsdóttir 1987-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Harpa Stefánsdóttir 1967-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Rannsóknin fjallar um hvernig smáhýsi geta nýst sem úrræði í húsnæðismálum í brothættum byggðarlögum á Íslandi, þar sem skoðað er hvort og hvernig slíkar lausnir geta stutt við byggðaþróun þar sem húsnæðisframboð er takmarkað og óvissa ríkir um þróun til lengri tíma. Borgarfjörður eystri er tilvik rannsóknarinnar þar sem byggðarlagið endurspeglar margar af þeim áskorunum sem rannsóknin beinist að, meðal annars lítinn og viðkvæman húsnæðismarkað og takmarkaða uppbyggingu nýs húsnæðis.&#xd;
Á undanförnum árum hafa mörg byggðarlög á Íslandi staðið frammi fyrir fólksfækkun, breyttri aldurssamsetningu og takmörkuðu framboði húsnæðis. Þetta á sérstaklega við í brothættum byggðarlögum, þar sem þessir þættir hafa áhrif á búsetuskilyrði og framtíðarmöguleika samfélaga. Hugtakið „Brothættar byggðir“, sem er þróunarverkefni á vegum Byggðastofnunar, er notað yfir slík byggðarlög.&#xd;
Framboð byggingarhæfra lóða er víða takmarkað, sem dregur úr möguleikum til uppbyggingar og gerir sveitarfélögum erfiðara fyrir að bregðast við breytingum í eftirspurn. Þetta getur haft áhrif á búsetuákvarðanir og möguleika fólks til að setjast að til lengri tíma. Takmarkað framboð húsnæðis getur þannig haft áhrif á bæði byggðafestu og þróun samfélaga.&#xd;
Á sama tíma hefur umræðan um smáhýsi aukist sem möguleg lausn á húsnæðisvanda. Smáhýsi hafa verið tengd einfaldari búsetu, minni kostnaði og sveigjanlegri uppbyggingu. Á Íslandi hafa slík hús aðallega verið notuð í afmörkuðum verkefnum, til dæmis sem félagslegt búsetuúrræði fyrir fólk í húsnæðisvanda. Hins vegar liggur ekki fyrir heildstæð greining á því hvernig smáhýsi falla að íslensku skipulags-, regluverks- og leyfisumhverfi, né hvaða hlutverki þau geta gegnt í húsnæðismálum í brothættum byggðarlögum. Markmið rannsóknarinnar er því að skoða hvernig smáhýsi geta nýst sem úrræði í brothættum byggðarlögum á Íslandi og hvaða þættir í skipulagi, regluverki og stjórnsýslu hafa áhrif á möguleika slíkra lausna.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2026-06-09T15:03:25Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2026-06-09T15:03:25Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2026-06-09T15:03:29Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2026-06-08T18:48:21Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2026-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">https://hdl.handle.net/1946/53708</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Skipulagsfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Smáhýsi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Brothætt byggðarlög</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Húsnæðismál</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Byggðaþróun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Borgarfjörður eystra</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Skipulagsmál</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Smáhýsi sem úrræði fyrir brothætt byggðarlög á Íslandi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>