<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-02T02:49:56Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/53712" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/53712</identifier><datestamp>2026-06-09T15:16:45Z</datestamp><setSpec>com_1946_35059</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_35061</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Sólrún Margrét Ólafsdóttir 2000-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Harpa Stefánsdóttir 1967-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Þrátt fyrir marga kosti gróðurs og listar í borgarrýmum benda rannsóknir til þess að oft myndist misræmi á milli markmiða og/eða ákvæða í skipulagi og raunverulegrar lokaútkomu borgarrýma. Rannsóknir hafa greint frá ýmsum lykilatriðum og hindrunum sem hafa áhrif á innleiðingu markmiða um gróður og list úr skipulagi í lokaútkomu borgarrýma. Hins vegar hefur ekki verið rannsakað af hverju þetta misræmi verður til í íslensku skipulags- og framkvæmdaferli. Markmið verkefnisins er því að greina hvað valdi því að markmið og/eða ákvæði um gróður og list raungerast ekki að fullu í endanlegri útfærslu borgarrýma og á hvaða stigi skipulags- og framkvæmdaferlisins þetta misræmi verður til.&#xd;
Til þess að svara spurningunni var gerð eigindleg tilviksrannsókn þar sem Vogabyggð svæði 1 og 2 voru tekin fyrir. Framkvæmd var skjalagreining (e. document analysis) og voru niðurstöður hennar meðal annars settar fram með ferlakortlagningu (e. process mapping). Einnig voru tekin hálf-opin viðtöl við fjóra aðila sem komu að mismunandi stigum skipulags- og framkvæmdaferils Vogabyggðar og voru viðtölin síðar greind með þemagreiningu.&#xd;
Niðurstöður leiddu í ljós þó nokkur lykilatriði og hindranir á mismunandi stigum skipulags- og framkvæmdaferils Vogabyggðar. Vilji og metnaður hagsmunaaðila skiptir miklu máli á öllum stigum ferlisins, á stigi nánari hönnunar og útfærslu er mikilvægt að búið sé að taka frá rými í deiliskipulagi fyrir gróður og list en einnig skipta skýr og bindandi ákvæði í deiliskipulagi miklu máli þar sem þau auðvelda skipulagsyfirvöldum að tryggja að ákvæðin endurspeglist í nánari hönnun áður en hún er samþykkt. Þegar uppbygging hefst skiptir framkvæmdatími og plöntuval miklu máli en ekki má gleyma góðri umhirðu og viðhaldi í framhaldi hennar.&#xd;
Á lokastigi skipulags- og framkvæmdaferilsins kemur fram stærsta hindrunin en það er í raun gloppa í ferlinum sjálfum. Þegar uppbyggingu lýkur eru lokaúttektir framkvæmdar á vegum byggingafulltrúa sveitarfélags en þá eru iðulega einungis mannvirkin tekin út en ekki lóðirnar sjálfar. Það er því á þessu stigi þar sem hvað mesta misræmi á milli skipulags og lokaútkomu getur átt sér stað en það er í raun enginn sem fylgir því eftir að lóðirnar sjálfar séu samkvæmt skipulagi. Þetta bendir til tiltölulega auðveldrar lausnar, svo sem að fela sérhæfðu starfsfólki á umhverfis- og skipulagssviði að annast lokaúttektir á vegum skipulagsfulltrúa. Þá væri hægt að tryggja að samþykktir lóðauppdrættir og skipulagsskilmálar komi til framkvæmda í reynd.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2026-06-09T15:16:41Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2026-06-09T15:16:41Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2026-06-09T15:16:45Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2026-05-26T18:02:33Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2026-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">https://hdl.handle.net/1946/53712</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Skipulagsfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Borgarskipulag</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Gróðurfar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Listaverk</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Markmið</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Ákvæði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Framkvæmdir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hindranir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Innleiðing</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Lokaútkoma</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Borgarrými</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Reykjavík</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Gróður og list í borgarrýmum</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>