<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-30T13:17:30Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/53717" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/53717</identifier><datestamp>2026-06-09T15:26:43Z</datestamp><setSpec>com_1946_35053</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_35054</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Laufey Steingrímsdóttir 2003-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Charlotte Wagner 2000-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Isabel C. Barrio 1983-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Jónína Sigríður Þorláksdóttir 1988-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Á undanförnum áratugum hefur viðvera villtra grasbíta, einkum farfugla á borð við gæsir og álftir, aukist verulega á Íslandi. Fuglarnir nærast gjarnan á ræktuðum túnum að vori og hausti sem hefur valdið óánægju meðal bænda. Árekstrarnir birtast þegar villtir grasbítar nýta sömu &#xd;
beitilönd og búfé eða þegar þeir nýta ræktuð lönd, éta og traðka niður gróður. Rannsóknir hafa sýnt að beit þessara tegunda getur valdið umtalsverðu uppskerutapi og þar af leiðandi auknum kostnaði fyrir bændur, en þrátt fyrir það eru rannsóknir á viðhorfum bænda til slíkra árekstra enn takmarkaðar. Markmið þessarar rannsóknar er að kanna viðhorf íslenskra bænda til árekstra milli villtra grasbíta og landbúnaðar. Sérstök áhersla er lögð á að greina hvaða tegundir valda mestum áhrifum að mati bænda, hvar og hvenær slíkir árekstrar eiga sér stað og hver sé birtingarmynd þeirra. Sem hluti af rannsókninni er greind umfjöllun um vandamál af völdum villtra grasbíta í Bændablaðinu síðasta áratuginn (2016 – 2026) og var framkvæmd nafnlaus spurningakönnun meðal bænda um allt land. Markmið könnunarinnar var að safna upplýsingum um reynslu þeirra af skaða sem villtir grasbítar valda og hvaða úrræði eru notuð til að verjast þeim. Niðurstöðurnar sýna að nær allir þátttakendur sem svöruðu spurningakönnuninni höfðu orðið varir við viðveru villtra grasbíta á landareign sinni, þar sem álftir og gæsir voru algengastar. Árekstrar reyndust bæði staðbundnir og árstíðabundnir, þar sem mestu áhrifin voru á nýræktum að vori og hausti. Meirihluti þátttakenda taldi ágang villtra grasbíta hafa neikvæð áhrif á landbúnaðarstarfsemi, vegna uppskerutaps eða minnkunar á fæðuframboði í náttúrulegum beitilöndum sem ætlað var búfé. Jafnframt benda niðurstöður til þess að umfang og áhrif árekstra séu bæði breytileg á milli svæða og háð staðbundnum aðstæðum og hegðun tegundanna. Rannsóknin undirstrikar mikilvægi þess að skilja bæði vistfræðilega og félagslega þætti árekstra sem kunna að myndast milli villtra grasbíta og landbúnaðar. Rannsóknin veitir mikilvæga innsýn í upplifun bænda af þessum árekstrum og stuðlar að betri skilningi á samspili landbúnaðar og villts dýralífs á Íslandi.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2026-06-09T15:26:39Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2026-06-09T15:26:39Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2026-06-09T15:26:43Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2026-05-07T21:50:51Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2026-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">https://hdl.handle.net/1946/53717</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Náttúru- og umhverfisfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Árekstrar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Landbúnaður</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Viðhorf bænda</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Villtir grasbítar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Búfé</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Ísland</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Viðhorf bænda til árekstra milli villtra  grasbíta og landbúnaðar á Íslandi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="en">Farmers‘ perspectives on conflicts between wild herbivores and agriculture in Iceland</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>