<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-26T16:25:57Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/53784" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/53784</identifier><datestamp>2026-06-13T13:56:15Z</datestamp><setSpec>com_1946_2003</setSpec><setSpec>com_1946_1992</setSpec><setSpec>col_1946_2005</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn á Bifröst</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Árni Freyr Sverrisson 1988-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Unnar Steinn Bjarndal Björnsson 1981-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" lang="is">ATH búið er að samþykkja að þetta verkefni sé lokað.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Þessi ritgerð fjallar um meginregluna um samningsstöðugleika (e. contractual stability) í alþjóðlegum knattspyrnurétti, með sérstakri áherslu á 17. gr. FIFA Regulations on the Status and Transfer of Players (RSTP) og dómaframkvæmd Court of Arbitration for Sport (CAS).&#xd;
Markmið ritgerðarinnar er að greina hvort núverandi regluverk nái raunverulegu jafnvægi milli hagsmuna leikmanna og félaga, og hvernig það jafnvægi mótast í framkvæmd.&#xd;
Í ritgerðinni er sýnt fram á að samningsstöðugleiki er ekki fastmótuð regla, heldur sveigjanlegt viðmið sem mótast í samspili reglna FIFA og dómaframkvæmdar CAS. Sérstök áhersla er lögð á túlkun hugtaksins just cause og hvernig beiting þess hefur áhrif á möguleika leikmanna til að losna undan samningssamböndum sem eru í reynd íþyngjandi eða óvirk. Jafnframt er fjallað um stöðu ólögráða leikmanna sem sérstakt frávik frá hefðbundinni beitingu reglunnar. Greiningin sýnir að verndarsjónarmið samkvæmt 19. gr. RSTP setja efnisleg mörk á samningsstöðugleika og leiða til þess að beiting 17. gr. verður að taka mið af aldri, samningshæfi og raunverulegri stöðu leikmanns. Í því samhengi er bent á að núverandi&#xd;
regluverk nái ekki að fullu utan um aðstæður þar sem samningssamband barns verður í reynd óvirkt án formlegs samningsrofs.&#xd;
Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru að þrátt fyrir að kerfið stuðli að fyrirsjáanleika og verndi fjárhagslega hagsmuni félaga, geti beiting þess í framkvæmd skapað ójafnvægi, sérstaklega gagnvart leikmönnum í veikari samningsstöðu. Þá er jafnframt sýnt fram á að dómaframkvæmd CAS gegnir lykilhlutverki við að móta sveigjanlega túlkun reglunnar og tryggja að hún aðlagist síbreytilegum aðstæðum á alþjóðlegum knattspyrnumarkaði.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2026-06-13T13:56:11Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2026-06-13T13:56:11Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2026-06-13T13:56:15Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2026-05-26T09:42:44Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2026-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">https://hdl.handle.net/1946/53784</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Samningaréttur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Knattspyrnufólk</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Atvinnumennska</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Samningsstöðugleiki í alþjóðlegum knattspyrnurétti: Greining á 17. gr. RSTP og dómaframkvæmd CAS með hliðsjón af stöðu ólögráða leikmanna</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>