<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-28T03:56:40Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/53787" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/53787</identifier><datestamp>2026-06-13T14:13:44Z</datestamp><setSpec>com_1946_2000</setSpec><setSpec>com_1946_1992</setSpec><setSpec>col_1946_2001</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn á Bifröst</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Sanita Hildarson 1978-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Magnús Árni Skjöld Magnússon 1968-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Vinnsla lífkennagagna og notkun gervigreindar við landamærastjórnun hefur á undanförnum árum orðið eitt af mest áberandi og umdeildu viðfangsefnum persónuverndar innan Evrópusambandsins og einnig á Íslandi. Hröð þróun stafrænnar tækni, einkum útbreiðsla andlitsgreiningar og annarra sjálfvirkra auðkenningarkerfa, hefur skapað nýjar áskoranir fyrir réttindi einstaklinga og kallað á endurskoðun á því hvernig jafnvægi er náð milli öryggis, skilvirkni og verndar grundvallarréttinda. Lífkennagögn njóta sérstakrar verndar samkvæmt almennu persónuverndarreglugerðinni (GDPR) í Evrópu, en framkvæmd hennar á landsvísu, ákvarðanir eftirlitsstofnana og dómstólaframkvæmd sýna að ábyrgðaraðilar þurfa að geta sýnt fram á bæði lögmæti vinnslunnar, að hún sé nauðsynleg og í samræmi við reglur um meðalhóf. &#xd;
Í ritgerðinni er lögð áhersla á að greina lagalegan ramma um vinnslu lífkennagagna innan Schengen svæðisins, með sérstakri áherslu á Ísland. Fjallað er um helstu áhættur sem tengjast notkun gervigreindar í landamærakerfum, svo sem möguleg mismununaráhrif, skort á gagnsæi, áskoranir við eftirlit og áhrif á rétt einstaklinga til alþjóðlegrar verndar. Einnig er skoðað hvernig nýtt regluverk ESB, þar á meðal Gervigreindarlögin (e.AI Act), leitast við að setja skýr mörk milli hááhættunotkunar og óheimillar framkvæmdar, sérstaklega þegar kemur að sjálfvirkri áhættumati, lífkennagreiningu og forspárkerfum.&#xd;
Ritgerðin byggir á greiningu á evrópskum og íslenskum réttarheimildum, stefnumótandi gögnum, fræðilegri umræðu og viðtölum við sérfræðinga. Markmiðið er að svara rannsóknarspurningunni: Að hvaða marki skapar notkun gervigreindar í Schengen landamærastjórnun spennu milli öryggissamþættingar og kröfu um persónuvernd og vernd grundvallarréttinda innan Evrópusambandsins?&#xd;
Niðurstöður benda til þess að þessi spenna sé raunveruleg og vaxandi. Á sama tíma og Schengen ríki leitast við að efla öryggi með samþættingu stórra upplýsingakerfa og sjálfvirkra greiningartækja, eykst hættan á að réttindi einstaklinga verði skert ef skortur er á gagnsæi, eftirliti og skýrum mörkum um heimila notkun. Sérstaða Íslands sem ytri landamæri Schengen gerir þessar áskoranir enn sýnilegri, þar sem landið þarf að samræma sig ströngum evrópskum stöðlum á sama tíma og tryggja að innleiðing nýrrar tækni sé í samræmi við íslenskan rétt og alþjóðlegar skuldbindingar.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2026-06-13T14:13:40Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2026-06-13T14:13:40Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2026-06-13T14:13:44Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2026-05-15T18:42:07Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2026-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">https://hdl.handle.net/1946/53787</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Gervigreind</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Landamæri</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Persónuvernd</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Schengen samstarfið</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Gervigreind í Schengen-landamærastjórnun: Öryggissamþætting, persónuvernd og kerfislæg spenna innan Evrópusambandsins</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>