<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-30T11:35:25Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/6067" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/6067</identifier><datestamp>2018-10-15T09:34:13Z</datestamp><setSpec>com_1946_2007</setSpec><setSpec>com_1946_1992</setSpec><setSpec>col_1946_2009</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn á Bifröst</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Arnheiður Guðmundsdóttir 1949-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Gylfi Dalmann Aðalsteinsson 1964-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Óstöðugleiki og breytingar einkenna okkar tíma en slíkt ástand kallar á nýjar hugmyndir um forystu og leiðtoga. Á okkar dögum þarf leiðtoginn að einbeita sér að möguleikum framtíðarinnar og hjálpa fólki að sjá heiminn í nýju ljósi. Hlutverk leiðtoga er að leiða fólk til þátttöku í verkefnum og kenna því að vinna með nýjum aðferðum. Leiðtogi framtíðarinnar þarf að leiða saman fólk og ólík sjónarmið, hafa styrk til að skapa samkomulag í samfélaginu og byggja brýr á milli ólíkra hópa. Það er þessi eiginleiki sem helst mun greina leiðtoga framtíðarinar frá leiðtogum fortíðarinnar Leiðtogar skapa nýja framtíðarsýn með því að breyta sjónarhorni sínu og átta sig á því hvað þeir sjá og hvernig þeir sjá. Leiðtogar verða að þjálfa færni sína í að greina aðstæður í samtímanum til að geta séð fyrir ný tækifæri og nýjan tilgang í framtíðinni. Á tímum alþjóðavæðingar er nauðsynlegt að hafa góða yfirsýn og skoða á málin út frá&#xd;
heildarsamhenginu. Eitt mikilvægasta verkefni skipulagsheilda á umbreytingatímum er að endurnýja sig. Á umbrotatímum leita á huga fólks spurningar eins og; hver er ég og hvert er hlutverk mitt? Svarið veltur á því hvaðan það kemur, hvort það kemur frá uppsprettu sérhagsmuna eða frá uppsprettu heildarhagsmuna sem bendir til dýpri skilnings á veruleikanum eins og hann er.&#xd;
Kenning U í leiðtogafræðum (e. Theory U) getur upplýst leiðtogann um hvernig hann á að þjálfa forystuhæfileika sína og hvernig kenninguna má nota við raunhæfar aðstæður. U-ferlið&#xd;
er eins konar leiðarakort til að auðvelda einstaklingum að stíga inn í mikilsverðar breytingar og sjálfsskoðun. Þegar leiðtoginn þróar forystuhæfileika sína er hann jafnframt að styrkja sjálfsmynd sína og andlega færni en nýar hugsjónir forystu byggjast nú fremur á því hver leiðtoginn er en hvað hann gerir. Nýjar aðferðir í leiðtogafræðunum eru aðeins ein birtingarmynd þeirra breytinga sem eru að verða á flestum sviðum vísinda og hugmyndir um hlutverk leiðtogans í framtíðinni gera ráð fyrir því að vísindamenn úr ólíkum greinum samhæfi krafta sína og bregðist við verkefnum með öðrum hætti en áður. Sumir fræðimenn telja að helstu orsakir erfiðleika í heilbrigðisþjónustu í dag sé of mikil&#xd;
áhersla á sérhæfingu. Heilbrigðiskerfi þurfa almennt ekki sérfræðinga á einu sviði til að stjórna og skipuleggja, heldur einstaklinga eða leiðtoga sem geta tekist á við ágreining innan&#xd;
kerfisins, leitt fólk til samstarfs og gert nýja sýn í heilbrigðisþjónustu að veruleika.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2010-08-26T13:58:17Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2010-08-26T13:58:17Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2010-08-26</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2010-08-26T13:17:30Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2010-06</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/6067</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Viðskiptafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Heilbrigðisþjónusta</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Leiðtogar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Forysta í nýjum heimi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>