<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-18T21:43:03Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/6069" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/6069</identifier><datestamp>2018-10-15T08:53:03Z</datestamp><setSpec>com_1946_2000</setSpec><setSpec>com_1946_1992</setSpec><setSpec>col_1946_2002</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn á Bifröst</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Anna Leif Elídóttir 1970-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Haukur Flosi Hannesson 1960-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Til að gera úttekt á menningu og menningararfi Hvalfjarðarsveitar voru eftirfarandi rannsóknarspurningar settar fram: Hvernig afmarkar sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar málaflokkinn menningu í stjórnsýslunni? Hvert er frumkvæði sveitarstjórnar og hvernig&#xd;
styður hún við einstaklingsframtak í menningarmálum? Á hvaða hátt hefur menningarstarf þróast í Hvalfjarðarsveit síðustu 200 árin? Hvernig stendur menningarstarfsemi Hvalfjarðarsveitar í dag? Hvaða möguleika hefur Hvalfjarðarsveit til að móta menn-ingartengd störf í sveitarfélaginu? Hver er möguleg framtíðarsýn&#xd;
Hvalfjarðarsveitar varðandi menningarstarfsemi? Til að svara þessum spurningum voru tekin viðtöl við sveitarstjóra, formenn nefnda og þá sem hafa með menningarmál að gera í sveitarfélaginu. Þegar saga sveitarfélagsins var skoðuð voru auk þess stutt&#xd;
símaviðtöl tekin við sérfræðinga í eldri málum. Þá voru m.a. fundargerðir nefnda greindar til þess að kanna starfssvið þeirra og skýrslur skoðaðar sem fjalla um atvinnumál og menningarmál á Vesturlandi.&#xd;
Afmörkun menningarmála í stjórnsýslu sveitarfélagsins er að finna á þremur stöðum; í Samþykkt um stjórn og fundarsköp Hvalfjarðarsveitar (2009) sem er nokkurs konar erindisbréf, Staðardagskrá 21 – Hvalfjarðarsveit (2008), sem er áætlun sveitarfélagsins til sjálfbærrar þróunar, og á fjárhagsáætlun sveitarfélagsins. Á tuttugustu öldinni var mikil þróun í menningarmálum þegar m.a. ungmennafélög, kvenfélög og&#xd;
skógræktarfélög voru stofnuð til þess að bæta samfélagið og umhverfið. Mikill menningararfur er á svæðinu og liggur meðal annars í landnámssögum og óáþreifanlegum menningararfi. Þessi arfur er ekki notaður til atvinnusköpunar svo neinu nemur í dag og gæti uppbygging menningartengdra starfa á svæðinu byggst á honum.&#xd;
Menningar- og atvinnumálanefndir sveitarinnar geta í framtíðinni tekið höndum saman til uppbyggingar spennandi viðkomustaða fyrir ferðamenn, sem byggja á menningararfi svæðisins.&#xd;
Menningarpíramíti Duelunds (1995) er hér notaður til afmörkunar menningarmála. Kenningar sem fjalla um ákvarðanatöku og stefnumótun er notaðar til greiningar á stjórnsýslunni. Kenning Kingdons um stefnuglugga (1984) er notuð til að greina hvað&#xd;
þarf að vera til staðar þegar ný tækifæri birtast og verða að veruleika og kenning Garreaus (1991) um útjaðar þéttbýlis, til að skýra stöðu Hvalfjarðarsveitar.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2010-08-26T13:58:37Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2010-08-26T13:58:37Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2010-08-26</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2010-08-26T13:56:43Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2010-06</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/6069</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Félagsvísindi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Menningararfur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hvalfjarðarsveit</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Menning og menningararfur í Hvalfjarðarsveit</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>