<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-22T11:17:22Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/6107" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/6107</identifier><datestamp>2018-10-15T09:32:28Z</datestamp><setSpec>com_1946_2007</setSpec><setSpec>com_1946_1992</setSpec><setSpec>col_1946_2008</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn á Bifröst</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Þór Elíasson 1983-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Einar Svansson 1958-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Frá því að farsíminn kom fyrst á yfirborðið eins og við þekkjum hann í dag hefur margt breyst og þróunin tekið nýja stefnu. Fjölmargir farsímaframleiðendur og fyrirtæki í upplýsingatækni hafa keppst um að koma með bestu lausnirnar á markað en undanfarið hefur eitt upplýsingatæknifyrirtæki vakið mikla athygli með aðferðum sínum og mikilli markaðshlutdeild&#xd;
miðað við að vera tiltölulega nýtt á þeim markaði.&#xd;
Google skaut sér upp á yfirborðið með leitarvél sinni um aldamótin 1999-2000 með aðferðarfræði sem var algjörlega ný af nálinni og gjörbylti netsamfélaginu. Í dag eru tæp sex ár&#xd;
síðan Google var skráð á hlutabréfamarkað og er árleg velta félagsins komin yfir 20 milljarða Bandaríkjadali. Farsímasvið félagsins er hins vegar nýtilkomið og er viðfangsefni þessarar&#xd;
rannsóknar þar sem höfundur leitast eftir því að svara rannsóknarspurningunni með því að rýna í mynstur verkferla í vöruþróun Google á farsímasviði; skoða viðhorf neytenda og aðgengi að lausnum fyrirtækisins. Til að svara þessum þáttum tók rannsakandi viðtal við ónafngreindan starfsmann Google; setti saman tvo rýnihópa, auk þess að styðjast við afleiddar heimildir úr fræðigreinum og af netsíðum.&#xd;
Þegar á heildina er litið virðist mynstrið sem einkennir vöruþróun farsímasviðs Google ná að svara kalli neytenda úr samfélaginu nokkuð vel. Með tilkomu Android og samkvæmt tölum sem&#xd;
höfundur hefur reifað í rannsókninni er Google á hraðri uppleið með vöruþróun sína. Þarfir neytenda á farsímamarkaðinum eru jafn ólíkar og notendur eru margir, en Google virðist koma á&#xd;
móts við langflesta með vöruþróun sinni, jafnvel þótt viðkomandi teljist ekki til markhóps fyrirtækisins. Google þyrfti, að mati höfundar, að auka aðgengi að vörum sínum, þá sérstaklega&#xd;
þeim vörum sem ætlaðar eru farsímum, en neytendum finnst aðgengi ónægt og oft lítið um upplýsingar að finna.&#xd;
Þegar upp er staðið virðist Google mæta þörfum neytenda með vöruþróun á farsímasviði með sóma þar sem gæði, skilvirkni og notagildi virðast vera höfð að leiðarljósi. Starfsmenn Google&#xd;
hafa fengið 20% vinnutíma síns nokkuð frjálsan, svo lengi sem það styrkir innviði fyrirtækisins, starfsmanninn sjálfan eða leiðir af sér nýja vöru. Höfundur telur þennan 20% tíma starfsmanna&#xd;
helstu ástæðu fyrir velgengni Google og finnst að þessi aðferðarfræði sé eitthvað sem mætti hiklaust taka upp hjá fleiri fyrirtækjum á öllum sviðum markaðarins.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2010-08-31T11:39:43Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2010-08-31T11:39:43Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2010-08-31</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2010-08-31T09:46:15Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2010-06</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/6107</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Viðskiptafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Vöruþróun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Google</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Vöruþróun Google : hvernig mætir Google þörfum neytenda sinna með vöruþróun á farsímasviði?</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>