<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-03T22:36:11Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/7078" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/7078</identifier><datestamp>2018-10-12T10:33:26Z</datestamp><setSpec>com_1946_4482</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_4484</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Ásgeir Valdimar Hlinason 1964-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Sigurður Már Einarsson 1955-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Tvennskonar lífsferlar eru hjá bleikjum á Íslandi. Annars vegar eru staðbundnar bleikjur sem dvelja allan sinn aldur í ferskvatni, hins vegar sjóbleikjur sem geta dvalið fyrstu ár ævi sinnar í fersku vatni sem seiði og gengið eftir það árlega til sjávar yfir sumartímann og dvalið í ferskvatni yfir veturinn. Staðbundin bleikja og sjóbleikja eru útbreiddar um allt land.&#xd;
Lífsferill og far sjóbleikjustofna getur verið margbreytilegt. Seiðin alast upp í þeirri á þar sem foreldrarnir hrygndu, en ganga síðan til sjávar yfir sumartímann. Í sjó dvelur bleikjan mest við ströndina og fer ekki langt frá sinni upprunaá. Hún gengur síðan upp í ferskvatn síðla sumars eða að hausti og dvelur veturlangt í fersku vatni. Sá fiskur sem ætlar ekki að hrygna á komandi hausti getur gengið upp í aðrar ár en sína heimaá og haft þar vetursetu. Bleikjustofn/-ar á vatnasvæði Hvítár í Borgarfirði eru gott dæmi um stofn sem fer um nokkur mismunandi vatnsföll og í sjó á lífsskeiði sínu. Líkur benda til að hrygningarstöðvarnar séu einkum efst í Hvítá, þar sem bleikjan nýtir sér lindarlæki sem hrygningarsvæði (Ingi Rúnar Jónsson og Sigurður Már Einarsson, 2009).Verðmæti bleikjuveiða á Íslandi er verulegt og má sem dæmi nefna að árið 2008 voru skráðar um 30 þúsund stangveiddar bleikjur hér á landi (Guðni Guðbergsson, 2009). Mikilvægi silungastofna til stangveiði á að öllum líkindum eftir að aukast enn á næstu árum, samhliða aukinni eftirspurn eftir ódýrari veiðimöguleikum. Sjóbleikjan í Hvítá í Borgarfirði er verðmæt auðlind og er bleikjan bæði veidd í net og á stöng. Bleikjan gengur seint til hrygningar og fer bleikjuveiðin einkum fram þegar hún gengur á hrygningarsvæðin, sem getur verið allt fram í október. Vatnasvæði Hvítár í Borgarfirði er með fiskauðugustu svæðum landsins, en t.d. fara um 20% laxveiði á stöng á Íslandi fram á vatnasvæði hennar (Guðni Guðbergsson, 2009). Veiðiskýrslur sýna þó að heildarveiði á bleikju í Hvítá hefur dregist mjög saman á síðustu árum, sem bendir til að stofnstærð bleikjunnar hafi minnkað á vatnasvæðinu.&#xd;
Markmið verkefnisins er að meta mikilvægi Lambeyrarkvíslar sem hrygningar- og uppeldissvæðis fyrir sjóbleikju í Hvítá í Borgarfirði. Þetta var gert með mati á hrygningu bleikjunnar, mati á seiðaþéttleika og mati á fari seiða niður úr kvíslinni.&#xd;
Leitast þannig við að auka þekkingu á lífsháttum sjóbleikjunnar og samspili umhverfisþátta. Þekking á sjóbleikjustofnum er undirstaða skynsamlegrar umgengni við þessa fiskistofna í framtíðinni, samtvinnun verndar- og nýtingarsjónarmiða.&#xd;
Mikilvægi Lambeyrarkvíslar sem hrygningarstöðvar var m.a. kannað með talningu riðbletta í Lambeyrarkvísl haustið 2008 og fundust 158 riðblettir. Mat á búsvæðum fyrir bleikjuseiði í Lambeyrarkvísl í Borgarfirði fór fram haustið 2008. Farið var með öllum fiskgengna hluta árinnar að fossi ofarlega í gilinu, sem talinn er ófiskgengur. Lambeyrarkvísl var skipt í tvo einsleita kafla út frá botngerð og halla og voru botngerðir misjafnar. Á efra svæðinu (kafli 1) var botngerðin frekar gróf: möl 43,3% og smágrýti 56,7%. Neðra svæðið (kafli 2) var með minni halla og fínni botngerð: sandur 43,7%, möl 50,5% og smágrýti 5,8%. Framleiðslugildi var einnig misjafnt milli kafla, á kafla 1 var gildið 40,6 og á kafla 2 var gildið 26,5. Seiðabúskapur Lambeyrarkvíslar var athugaður með rafveiðum á tímabilinu 15. maí til 14. ágúst 2009. Rafveitt var á þremur stöðvum í alls fjórum ferðum og voru svæðin misstór. Fjöldi seiða á 100 m² (seiðaþéttleiki) var mestur hjá 1 árs og 2 ára seiðum. Meðalástandsstuðull var í kringum 1. Hjá 0+ var hann minnstur 0,83 en mestur hjá 2+ og 3+ eða 1,01. Lítill seiðaþéttleiki (fjöldi seiða á 100m²) var á öllum stöðvum samanlagt, meðalþéttleikinn hjá 0+ var 0,15, hjá 1+ var 2,58, hjá 2+var 2,57 og hjá 3+ var 0,17 M Hér mættu koma fram meðaltöl fyrir seiðaþéttleikann á öllum stöðvum til að sýna hversu lágur hann er&#xd;
Kannað var magn seiða sem gengu niður úr Lambeyrarkvísl með því að setja niður þrjár seiðagildrur sumarið 2009. Alls veiddust 148 seiði í gildrurnar, mest af vorgömlum (0+) seiðum í 24. viku. Hitasíritar eru bæði í Lambeyrarkvísl og Hvítá og eru gögn frá þeim notuð í verkefninu.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2010-12-20T11:26:50Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2010-12-20T11:26:50Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2010-12-20</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2010-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/7078</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Sjóbleikja</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Lífshættir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Seiðabúskapur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Farleiðir sjóbleikjuseiða í Lambeyrarkvísl í Borgarfirði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>