<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-04T03:49:19Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/7195" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/7195</identifier><datestamp>2018-10-15T09:41:56Z</datestamp><setSpec>com_1946_2059</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2066</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Linda Sæberg 1982-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Anni G. Haugen 1950-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Í þessu verkefni er leitast við að svara eftirfarandi spurningum; Er þörf fyrir sértæka kynheilbrigðisþjónustu fyrir unglinga á Íslandi? Hvernig er kynheilbrigði unglinga á Íslandi? Hefur klámvæðing áhrif á kynheilbrigði unglinga? Til að leita svara verður fjallað um hugtökin kynheilbrigði, klám og klámvæðingu og þau tengd við líf unglingsins. Þróun einstaklings á unglingsárunum verður skoðuð og reynt að varpa ljósi á þær breytingar sem eiga sér stað hjá einstaklingum á þeim tíma. Rætt verður um kynheilbrigði og kynhegðun unglinga í ljósi þeirrar klámvæðingar sem einkennir samfélag nútímans, þar sem fjöldi kynsjúkdómasmita, þungana og fóstureyðinga hjá þessum aldurshóp verður skoðaður. Litið verður til sögu sértækrar kynheilbrigðisþjónustu fyrir unglinga hér á landi og hún borin saman við þjónustuna sem er í boði nú á dögum með það að markmiði hvort nauðsyn sé að bæta hana eða sérsníða á einhvern hátt. Auk þess verður sambærileg þjónusta í nágrannalöndunum skoðuð og bæði erlendar og innlendar rannsóknir á óskum unglinganna fyrir slíkri þjónustu.		Á Íslandi er fjöldi klamydíu – og kynfæravörtusmita hlutfallslega hærri en í nágrannalöndum okkar og er sýkingin algengust hjá stúlkum á aldrinum 15-20 ára. Auk þess hefur fjöldi fæðinga og fóstureyðinga hér á landi hjá ungu fólki undir 20 ára verið töluvert hærri ef miðað er við Norðurlöndin síðustu árin, en má þó sjá að eitthvað hafi dregið úr þeim fjölda nú á síðari árum. Sértækar kynheilbrigðisþjónustur fyrir unglinga hafa verið starfræktar um nokkurra áratuga skeið í löndum eins og Svíþjóð, Bretlandi og Bandaríkjunum með mjög góðum árangri. Þar er starfsfólkið sérþjálfað til að mæta þörfum unga fólksins sem þangað leitar auk þess sem það fer reglulega á símenntunarnámskeið á vegum heilbrigðisstofnunarinnar og sveitarfélaganna.  Þrátt fyrir að sérstakar unglingamóttökur hafi opnað víðsvegar um landið í kringum 1999-2003 og þær verið ágætlega sóttar, var búið að loka þeim flest öllum árið 2007. Kannanir sem gerða hafa verið hér á landi á meðal unglinga hafa allar sýnt mikinn áhuga þeirra á að sækja slíka þjónustu og þó svo að enn sé fjöldi kynsjúkdómasmita og þungana mikill hjá hjá ungu fólki hafa þessar móttökur ekki opnað á ný til að veita unglingum þá þjónustu sem þeir óska eftir.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2011-01-11T10:54:07Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2011-01-11T10:54:07Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2011-01-11</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2011-01-10T13:29:09Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2011-01</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/7195</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Félagsráðgjöf</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Unglingar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Kynhegðun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Klám</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Heilbrigðisþjónusta</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Er þörf fyrir sértæka kynheilbrigðisþjónustu ætlaða unglingum á Íslandi?</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>