<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-24T21:33:53Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/7246" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/7246</identifier><datestamp>2018-10-12T10:24:14Z</datestamp><setSpec>com_1946_4443</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_4478</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Sveinn Rúnar Ragnarsson 1987-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Jónatan Hermannsson 1946-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Kartöfluyrkjatilraunin var gerð í sandblendnum jarðvegi í Akurnesi í Hornafirði og í móajarðvegi á tilraunastöðinni á Korpu. Í henni fólst að bera saman erlendu kartöfluyrkin&#xd;
Belana, Inova, Piccolo star og Riviera út frá gæðum þeirra og uppskerumagni. Til viðmiðunar voru yrkin Gullauga og Premier sem eru þrautreynd við íslenskar ræktunaraðstæður. Auk þess&#xd;
voru bornir saman þrír mismunandi áburðarliðir í Akurnesi með tilliti til staðsetningar flýtiáburðarins OPTI - STARTTM (12% N, 23% P) og áburðarmagns. Tilraunin í Akurnesi var blokkatilraun með tveimur blokkum, 6 x 3 x 2 eða alls 36 reitir. Innan blokkanna tveggja voru sex smáblokkir sem notaðar voru til að fylgjast með og bregðast við breytileika í landinu. Kartöfluyrkjunum og áburðarliðunum var raðað handahófskennt innan smáblokkanna. Við tölfræðiuppgjör tilraunarinnar var notuð tvíþátta ferkvikagreining á línulegu módeli (General Linear Model) auk Pearson fylgnigreiningar. Markmið tilraunarinnar var að komast að því hvort mismunur væri á uppskeru að magni og&#xd;
gæðum eftir kartöfluyrkjum og áburðarliðum. Auk þess fól tilraunin í sér að kanna hvort eitthvað af erlendu kartöfluyrkjunum gæti hentað til áframhaldandi ræktunar á Íslandi.&#xd;
Helstu niðurstöðurnar voru þær að kartöfluyrkið Belana hentar til ræktunar við íslenskar aðstæður og þá sérstaklega með tilliti til vinnslu á forsoðnum kartöflum. Yrkin Piccolo star og Riviera lofa góðu en þarfnast frekari samanburðartilrauna. Staðsetning OPTI-STARTTM flýtiáburðarins í rás hjá kartöflunum gaf mesta uppskeruaukann að jafnaði fyrir alla uppskeruliði tilraunarinnar.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="sponsorship" lang="is">Sambandi garðyrkjubænda</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2011-01-13T09:32:35Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2011-01-13T09:32:35Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2011-01-13</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2009-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/7246</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Kartöflur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Áburður</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Vinnsluprófun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Samanburður á kartöfluyrkjum og mismunandi staðsetningu flýtiáburðar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>