<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-27T03:53:32Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/8632" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/8632</identifier><datestamp>2018-10-15T15:47:14Z</datestamp><setSpec>com_1946_2064</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2107</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Margret Herdís Einarsdóttir 1961-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Rannveig Ólafsdóttir 1963-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Ímynd áfangastaða er mikilvægt atriði í ferðaþjónustu og hefur veruleg áhrif á ákvörðunartöku ferðamannsins varðandi val á áfangastað. Í dag standa flest öll jaðarsvæði frammi fyrir verulegri áskorun varðandi þróun ferðaþjónustu og þarf ímynd þeirra að draga athygli ferðamanna að sérstöðu svæðisins og þeirri einstöku upplifun sem er þar í boði. Á jaðarsvæðum verður sérstaða aðdráttaraflsins enn mikilvægara en á kjarnasvæðum, þar sem ferðamaðurinn þarf að eyða meiri tíma og fjármunum til að koma sér á svæðið. Umráð yfir aðdráttarafli er ekki trygging fyrir að ferðaþjónusta blómstri á jaðarsvæðum heldur liggur velgengnin frekar í því hvernig til tekst að koma upplýsingum um sérstöðu svæðisins til skila til ferðamannsins. Meginmarkmið þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á ímyndarsköpun og markaðssetningu ímyndar hjá íslenskum ferðaþjónustufyrirtækjum á jaðarsvæðum. Það var gert með því að kanna ímynd ferðaþjónustufyrirtækja á Ströndum þar sem svæðið fellur vel innan skilgreiningar á jaðarsvæðum. Rannsóknin byggir á sex viðtölum við aðila sem reka ferðaþjónustu á svæðinu eða hafa haft afskipti af skipulagsmálum á Ströndum. Niðurstöður leiddu í ljós að ekki er mikil samstaða meðal ferðaþjónustuaðila á Ströndum varðandi ímyndarsköpun, sú ímynd sem áhersla er á í markaðssetningu svæðisins er frekar ímynd Vestfjarða sem heild. Ferðaþjónustan telur svæðið geta boðið ferðamönnum upp á einstaka upplifun sem ekki finnst á öðrum stöðum en það vantar að skilgreina nákvæmar í hverju sérstaðan liggur. Ferðaþjónustuaðilar á Ströndum telja svæðið að öllu leyti falla innan skilgreininingar á jaðarsvæðum en hafa ekki nýtt staðsetningu svæðisins né sérstöðu til að ná til ákveðins markhóps ferðamanna.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2011-05-20T11:55:14Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2011-05-20T11:55:14Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2011-05-20</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2011-05-20T11:52:43Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2011-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/8632</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Ferðamálafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Strandir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Jaðarbyggðir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Ferðaþjónusta</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Ímyndarsköpun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Markaðssetning</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Ímyndarsköpun ferðaþjónustu á jaðarsvæðum: Strandir sem áfangastaður ferðamanna</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>