<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-27T06:23:26Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/9251" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/9251</identifier><datestamp>2018-10-12T10:24:14Z</datestamp><setSpec>com_1946_4443</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_4478</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Sigurður Torfi Sigurðsson 1969-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Þorvaldur Kristjánsson 1977-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Megin markmið verkefnis var að taka saman upplýsingar um járningar og hófa reiðhrossa (n=89) og hrossa sem sýnd voru í kynbótadómi (n=463). Skoðað var jafnframt gagnasafn yfir meðal hóflengdir úr 478 kynbótasýningum í 13 löndum á árunum 2000-2010, þar sem alls voru sýnd 25972 hross. Samkvæmt niðurstöðum eru hófar íslenskra hesta frekar sporöskjulaga að lögun, þ.e. frekar lengri frá tá aftur á hæl en á breidd. Meðaltal tálengdar er 7,7 cm á framan, en 7,5 cm að framan. Meðalhalli táar er 51,2° fyrir framhófa og 51,7° fyrir afturhófa. Meðal munur á halla táar og hæls reyndist vera 3,3° fyrir framhófa og 5,9° fyrir afturhófa.&#xd;
Skoðað var hvort mismunandi járningar og hóflag tengist einkunnum hrossa í kynbótadómi og ágripum. Niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að marktækur munur er á stærð hófa reiðhrossa sem járnuð eru í grunnstöðu og hófa kynbótahrossa. Einnig var marktæk fylgni á milli hófstærðar og byggingaeinkunna fyrir hófa og á milli hófstærðar og flestra hæfileikaþátta. Þannig voru hross með lengri hófa með marktækt hærri dóma fyrir tölt, brokk, fet, hægt tölt, hægt stökk og fegurð í reið. Aftur á móti reyndist vera neikvæð fylgni á milli hófstærðar og einkunna fyrir skeið. Marktækur munur var á stærð hófa þeirra hrossa sem fengu jákvæðar umsagnir á dómblaði í kynbótadómi og þeirra sem fengu neikvæðar umsagnir. Meðalhóflengd kynbótahrossa hafði ekki breyst á árabilinu 2000-2011, en marktækur munur reyndist á milli árstíma sýninga og á sýningarlöndum, en lengstu hófarnir virðast hafa verið á hrossum sýndum á Íslandi og í Þýskalandi. Samkvæmt samanburði á reiðhrossum og kynbótahrossum má draga þá ályktun að meta þurfi þau mörk sem eru á því hversu mikið hægt er að nota aukna hófstærð sem hjálpartæki við þjálfun, keppni og sýningar.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="sponsorship" lang="is">Fræðslunet Suðurlands&#xd;
Rannís</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2011-06-20T09:39:57Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2011-06-20T09:39:57Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2011-06-20</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2011-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/9251</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Íslenski hesturinn</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Járningar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Hófar íslenskra hrossa: samanburður hófa reið- og kynbótahrossa</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>